Leita í fréttum mbl.is

Verðmæti fargaðs mRNA efnis 1,9 milljarðar

Ísland er í sjötta sæti Evrópuþjóða sem kaupandi bóluefna með 442,5 skammta á hverja 100 íbúa. Af 1.648 þúsund skömmtum höfðu 889 þúsund verið notaðir í okt ´23. Þar sem þátttaka eldri borgara í örvunarbólusetningum veturinn 2023 til 2024 var dræm en þá þáðu einungis 26,6% einstaklinga á aldrinum 65 til 70 bólusetningu, 44,4% 70 til 79 ára og 46,6% 80 ára og eldri má varlega áætla verðmæti fargaðs bóluefnis 1,9 milljarða. Ítrekuðum fyrirspurnum um bóluefnakaup ríkissjóðs á grundvelli upplýsingalaga hefur ekki verið svarað.

Að förgun yfir 700 þúsund mRNA skammta er fagnaðarefni skýrist af niðurstöðum rannsókna sem sýna að eitt dauðsfall fylgir hverjum 1.000 bólusetningum. Menn geta rétt ímyndað sér ástandið á yfirfullri neyðarmóttökunni í Fossvogi ef landsmenn hefðu þegið fargaða efnið.ECDC samsett vacc 23 til 24


Til minnis

Plakatið er í innrömmun og ætlaður staður á veggnum gegnt skrifborði verðandi heilbrigðisráðherra til að auðvelda nýjum ráðherra störfin og draga úr líkum á að aðalatriðin gleymist.Gagnsleysi mRNA a gamansaman hatt


Neikvæð smitvörn

Erfitt er að afneita eyðileggingarmætti Covid-19 mRNA örvunarefnanna þegar horft er á klippuna sem sýnir fjölda látinna Íslendinga á tímabilinu janúar til og með október á árunum 2020 til 2024. Ekkert lát er á umframdauðsföllum samanber stöðu Íslands meðal þjóða Evrópu með hæst hlutfall umframdauðsfalla í október. Til upprifjunar; fyrsta kóvid árið var 2020, bólusetningar hófust af krafti vorið 2021, örvunarbólusetning (þriðja sprautan) var boðin landsmönnum veturinn 21/22. Sjúkdómseinkennin voru orðin það væg þegar leið á febrúar 2022 að Embætti landlæknis ákvað að aflétta sóttvarnaráðstöfunum.

Við ákvarðanir um bólusetningar eldri borgara virðist ekki litið til þeirrar staðreyndar að mRNA efnið „hefur ekki reynst mjög gagnlegt til að hindra smit til eða frá bólusettum einstaklingi“ svo notað sé orðalag fráfarandi landlæknis. Niðurstöður ritrýndra rannsókna sem sýna neikvæða smitvörn mRNA efnanna hafa heldur ekki áhrif á ákvörðunina. En hvað er neikvæð smitvörn? Neikvæð smitvörn er þegar þeim bólusetta er hættara við að veikjast af veikinni sem bóluefnið átti að verja viðkomandi fyrir eftir því sem hann þiggur fleiri sprautur. Nýjar upplýsingar um neikvæða smitvörn efnanna koma fram í rannsókn Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna CDC sem sýnir að bólusettum börnum vestra er hættara við Covid eftir því sem börnin eru bólusett oftar. Hlekkur á frásagnir af rannsóknunum fjórum sem staðfesta neikvæða smitvörn mRNA efnis Pfizer.Fjöldi látinna jan okt 20 til 24


Ísland toppar í Evrópu með 18,6% umframdauðsföll í október

Að Ísland hafi mælst með hæsta mánaðarlegt hlutfall umframdauðsfalla í Evrópu í október er ekki í fyrsta sinn og hefur landið verið í hópi Evrópuþjóða með hlutfallslega flestu dauðsföllin í mörg ár. Taflan sýnir hlutföll Íslands í samanburði við...

Pfizer er mengað af saurgerils DNA og inniheldur SV40 krabbameinsvaldinn

Ekki er ólíklegt að landsmönnum sem stóð Pfizer til boða hefðu hugsað sig tvisvar um hefðu þeir vitað að efnið væri mengað af e-coli saurgerils DNA plasmíði og í því væri að finna SV40 krabbameinsvaldinn sem hafði skelfilegar afleiðingar í mænusóttar...

Bólusettir í 23% meiri hættu á bráðum hjarta- og æðaskaða samkvæmt Pfizer

Þar sem lokaskýrslu Pfizer um öryggi og reynslu af mRNA Covid-19 bóluefni framleiðandans verður skilað 20.12. n.k. er hjálplegt til samanburðar að rifja upp niðurstöður 5 áfangaskýrslunnar sem skilað var til eftirlitsaðila 24. mars s.l. og spannaði í...

Fjölfaldandi mRNA Covid-19 efni senn í boði

Beðið er samþykkis framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á nýrri útfærslu mRNA bóluefnanna gegn Covid-19 en European Committee for Medicinal Products for Human Use (CHMP) samþykkti jákvæða umsögn um leyfisumsókn efninu til handa 12. desember s.l..Efnið...

Bjargráðsígræðslum fjölgar um 43%

Hjartastopp verður í langflestum tilvikum vegna hjartsláttartruflana frá sleglum (neðri hjartahólfum). Ef tekst að endurlífga einstaklinga sem fara í hjartastopp er viss hætta á að atburðurinn endurtaki sig. Viðbrögð geta verið lyfjameðferð en algengara...

Ristilspeglunum á Landspítala fjölgar um 41%

Í starfsemisupplýsingum Landspítala vekur athygli að ristilspeglunum fjölgaði um 41% á fyrstu 11 mánuðum ársins frá sama tímabili liðins árs og sértækum magaspeglunum fjölgaði um 78%. Ekki er hægt að útiloka að fjölgun speglana eigi sér skýringar í...

Að svipta heimilislækni starfsleyfi

Hæstiréttur Queensland í Ástralíu hefur fellt dóm í máli heimilislæknisins Dr. William Anicha Bay gegn AHPRA Australian Health Practitioner Regulation Agency, The Medical Board of Australia og State of Queensland til ógildingar starfsleyfissviptingu frá...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband