16.11.2025 | 08:37
Hvað með íslensku gögnin?
Af tillitssemi við aðstandendur látinna og til að hlífa þeim við hugarangri og reiði neita bresk stjórnvöld að gefa ópersónugreinanlegar upplýsingar úr gagnagrunni um bólusetningar, tímasetningar þeirra og dánardægur bóluefnaþega. Stjórnvöld eru sökuð um yfirhylmingu þar sem af viðbrögðum þeirra má ráða að upplýsingarnar gefi sterkar vísbendingar um fylgni og jafnvel orsakasamband Covid bólusetninganna og hás hlutfalls umframdauðsfalla á Bretlandseyjum. Íslendingar hafa ekki farið varhluta af umframdauðsföllunum sem sést af annarri hæstu aldursstaðlaðri umframdánartíðni í Evrópu á árinu 2022 og þeirri hæstu hæstu tvö síðustu árin, þ.e. 2023 og 2024. Hliðstæðar upplýsingar og bresk stjórnvöld neita að birta liggja fyrir í tölvum heilbrigðisráðuneytis og Embættis landlæknis hér á landi. Ítrekað en án árangurs hefur verið kallað eftir birtingu gagnanna á ópersónugreinanlegu formi.
14.11.2025 | 10:29
Ísland með hæstu umframdánartíðni í Evrópu árum saman
Ísland var með aðra hæstu aldursstaðlaða umframdánartíðni í Evrópu á árinu 2022 og þá hæstu tvö síðustu ár, þ.e. 2023 og 2024. Það þarf markviss handtök í heilbrigðisráðneytinu til að halda upplýsingum um skaðann af völdum fjöldabólusetninganna frá landsmönnum. Þannig hefur Landspítalinn hætt upplýsingagjöf en spítalinn hefur árum saman gefið út mánaðarlegt rafrænt hefti með starfsemisupplýsingum. Ekki er nóg með að spítalinn hafi hætt að gefa upplýsingar um starfsemi liðins mánaðar því upplýsingar sem áður voru aðgengilegar á heimasíðu spítalans um starfsemi fyrri ára eru það ekki lengur. Jafnvel heyrist að stjórnvöld hafi gengið svo langt í þögguninni að þau hafi beitt fjölmiðla hótun um niðurskurð fjölmiðlastyrks til að koma í veg fyrir fréttaflutning og fyrirbyggja birtingu aðsendra greina í blöðum sem benda á skaðsemi efnanna og mistök heilbrigðisyfirvalda. Hvort stjórnvöldum tekst með þöggun gagnrýni að hylja mistök liðinna ára fyrir landsmönnum verður að telja ólíklegt. Þau ráða ekki við þróunina erlendis þar sem umræðan um skaðsemi Covid efnanna er komin upp á yfirborðið í stærstu fjölmiðlum.
12.11.2025 | 10:07
Hjúkrunarrými eru 44% færri en í Svíþjóð og 37% færri en í Finnlandi
Klippan sýnir hvernig búið er að öldruðum á Íslandi á mælikvarða fjölda hjúkrunarrýma á hverja eitthundrað þúsund íbúa í samanburði Evrópuþjóða. Svíþjóð og Finnland eru meðal þeirra þjóða þar sem best er búið að öldruðum í álfunni en hjúkrunarrými eru 44% færri á Íslandi en í Svíþjóð og 37% færri en í Finnlandi. Hjúkrunarrýmum á Íslandi hefur fækkað um 4,4% frá 2019 reiknað á hverja 100.000 íbúa. Verulega hefur skort á að markmið fyrri heilbrigðisráðherra um fjölgun rýma á liðnum árum hafi orðið að veruleika. Vonandi verður nú á því breyting þar sem núverandi ríkisstjórn hyggst fara í sérstakt átak til að fjölga hjúkrunarrýmum. Að fjölga hjúkrunarrýmum er sparnaðarráðstöfun fyrir ríkissjóð þar sem það er fjárhagslegra hagkvæmara að búa öldruðum aðstöðu á hjúkrunarheimili þar sem kostnaður vistunar er lægri en á Landspítala var meðal þess sem fram kom í áhugaverðu viðtali Stefáns E. Stefánssonar stjórnanda Spursmála á Mbl.is við Björn Zoëga fyrrv. stjórnarformann Landspítalans.
11.11.2025 | 13:20
Hjúkrunarrýmum fjölgaði um 2,5% á sama tíma og biðlistar lengdust um 64%
10.11.2025 | 08:56
Að hylja hörmulegan starfsárangur
9.11.2025 | 09:40
Dánarmeinaskrá hagrætt. Þöggunin nær nýjum hæðum
7.11.2025 | 07:42
Var Davíð Oddsson þá falur eftir allt saman?
26.9.2025 | 08:45
Einhverfa þríbura klukkustundum eftir bólusetningu
23.9.2025 | 06:32
Öldruðum í bið eftir hjúkrunarrými fjölgar um 63%
13.9.2025 | 09:54
