Leita í fréttum mbl.is

Áhætta á að veikjast af covid lækkaði um 0,84% við bólusetningu

Öruggt má telja að landsmenn hefðu ekki þegið bólusetningu gegn Covid-19 hefðu þeir verið upplýstir um að ávinningurinn af bólusetningunni til að forða þeim frá að veikjast af covid væri hverfandi eða innan við 1%. Upplýsingar um afar takmarkaða smitvörn mRNA bóluefnis Pfizer lágu fyrir í lok desember 2020 þegar bólusetningar hófust hér á landi. Landsmönnum var talin trú um 95% vernd efnanna á grundvelli útreiknings lækkunar hlutfallslegrar áhættu (relative risk reduction) en FDA (Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna) varar við kynningu á smitvörn lyfja með þeim útreikningi.

Þegar horft er til baka er með ólíkindum að ráðist hafi verið í allsherjarbólusetningu þar sem ávinningurinn af bólusetningu sem smitvörn var samkvæmt niðurstöðum klínískra rannsókna innan við 1%. Að milljörðum hafi verið varið úr ríkissjóði til kaupa á lítt reyndum bóluefnum sem þróuð voru á grundvelli nýrrar tækni með jafn takmarkaða virkni sem smitvörn. Ekki er síður furðulegt að sjá bóluefnið enn í notkun með vísan til skaðans sem sannanlega má rekja til notkunar bóluefnanna að ekki sé minnst á ótímabæran dauðdaga fjölda landsmanna fyrir tilverknað efnanna. Takmarkað álit landlæknis á gagnsemi mRNA efnanna sem smitvarnar og þýðingarleysi bólusetningar fyrir heilbrigðisstarfsmenn má lesa á heimasíðu embættisins þar sem fram kemur að bólusetning hafi „ekki reynst mjög gagnleg til að hindra smit til eða frá bólusettum einstaklingi.“Pfizer absolute v relative


Fjársveltum ekki Ráðgjafar- og greiningarstöð

Börnum sem greinst hafa á einhverfurófi hefur fjölgað mikið hér á landi. Fréttir af niðurskurði fjárframlaga til starfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar á sama tíma og tilvísunum um þjónustu hefur fjölgað um 60% og að fjölskyldur fatlaðra barna þurfi að bíða í tvö ár eftir þjónustu stofnunarinnar vekja undrun.

Súluritið sýnir þróunina í Kaliforníu frá 1989. Umdeilt er hvort þróunina megi rekja til lagasetningar 1986 sem tryggði lyfjaframleiðendum í Bandaríkjunum skaðleysi vegna hugsanlegs miska af völdum bóluefna á heilsu barna. Að lagasetningin hafi leitt til óvandvirkni lyfjaframleiðenda við klínískar rannsóknir barnaefnanna líkt og almenningur hefur upplifað með skaðsemi Covid efnanna. Nýkjörinn forseti hefur falið heilbrigðisráðherra að láta það verða eitt af sínum fyrstu verkum í embætti að ganga úr skugga um öryggi barnabóluefnanna. Eins og súluritið ber með sér verður fjölgun einstaklinga á einhverfurófi betur lýst sem faraldri. Ekki er undarlegt að verðandi forseti vestra hafi áhyggjur af faraldri einhverfu því að óbreyttu mun annað hvert barn í Bandaríkjunum greinast á einhverfurófi að 10 til 20 árum liðnum.California caseload Autism count


Breskir læknar og hjúkrunarfræðingar áhugalitlir um örvunarbólusetningu

Áskorun stjórnenda Bresku heilbrigðisþjónustunnar (NHS) til starfsmanna um bólusetningu gegn Covid-19 hefur til þessa skilað takmörkuðum árangri þar sem 86% starfsmanna hafa ekki þegið Covið sprautu og 75% þeirra hafa enn ekki látið bólusetja sig gegn inflúensu en efnunum er haldið stíft að almenningi með auglýsingaherferð í sjónvarpi og útvarpi. Læknir NHS taldi aukaverkanir mRNA efnanna, sem starfsmenn og sjúklingar hafa reynt, vera áhrifaþátt í bóluefnahiki starfsmannanna. Frá 2019, eða ári fyrir Covid, til 2024 hefur veikindadögum starfsmanna fjölgað um 40 til 50%.NHS vaccine hesitant


69% starfsmanna harðákveðnir í að afþakka bólusetningu

Starfsmenn á hjúkrunarheimilum í Ástralíu voru skyldaðir til tveggja bólusetninga vildu þeir halda störfum sínum á tímum Covid. Traust þeirra á bóluefnunum hefur rýrnað svo mjög að 69% þeirra eru harðákveðnir í að láta ekki bólusetja sig komi til nýs...

Að draga læknastéttina með í fallinu

Niðurstöður rannsókna sýna sterka fylgni Covid mRNA bólusetninga og fjölgun dauðsfalla. Að með yfirgnæfandi líkum megi rekja umframdauðsföllin til bóluefnanna ásamt nýjum staðfestingum á DNA mengun efnanna langt umfram heimil mörk gerir áframhaldandi...

Landlæknir kvaddur

Landlæknir hefur sagt starfi sínu lausu. Við starfslok er við hæfi að rifja upp athugun OECD þar sem gerður var samanburður á árangri sóttvarna á Covid árunum meðal aðildarþjóða. Niðurstöður skýrslunnar voru áfellisdómur fyrir Ísland. Skýrslan staðfesti...

« Fyrri síða

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband