19.2.2024 | 10:39
Að gaslýsa heilbrigðisráðherra, ríkisstjórn, þingmenn og fjölmiðla
SARS-CoV-2 veiran sem veldur Covid-19 sjúkdómnum barst til landsins í febrúar 2020 og hófust bólusetningar gegn veirunni um áramótin 2020/2021. Á árinu 2020 létust 31 af völdum Covid.
Landsmenn þáðu 719.000 sprautur af bóluefnum á árinu 2021. Þátttaka almennings í bólusetningum var mikil og þáðu liðlega 80% frumbólusetningu (fyrstu tvær sprauturnar) og 69% fyrstu örvunarsprautuna. Þegar árið var gert upp kom í ljós að 7 höfðu látist úr sjúkdómnum en hins vegar höfðu Lyfjastofnun borist 33 tilkynningar um dauðsföll í kjölfar bólusetninga á árinu 2021. Því létust þó nokkuð fleiri á árinu 2021 af völdum bóluefnanna en látist höfðu af völdum Covid á árinu.
Alda Covid smita gekk yfir í byrjun árs 2022. Þrátt fyrir mikinn fjölda smita reyndist lítið um alvarleg veikindi og spítalainnlagnir héldust fáar. Því var talið óhætt að afnema allar sóttvarnaráðstafanir vegna Covid 25. febrúar 2022. Mikil áhersla var lögð á örvunarbólusetningar um veturinn. Landsmenn þáðu á fjögurra mánaða tímabili nóv. til feb. 22 alls 225.000 sprautur. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Umframdauðsföllum fjölgaði mjög í kjölfar bólusetninganna eins og sjá má á súluritinu. Flest urðu umframdauðsföllin í mars 2022 þegar landlækni reiknaðist til að þau hefðu verið 40,6% (54,4% samkvæmt Eurostat). Þrátt fyrir að afleiðingar bólusetningarstefnunnar væru aðilum ljósar var haldið áfram að örvunarbólusetja almenning og þáðu landsmenn 154.000 bóluefnaskammta á árinu 2022. Í árslok lá fyrir að dauðsföllum hafði fjölgað um 15% á milli ára á sama tíma og landsmenn höfðu þegið 873.000 sprautur.
Til að auðvelda lesandanum að glöggva sig á orsakasamhengi bólusetninganna og dauðsfallanna sýna bláu súlurnar fjölda bóluefnaskammta í mánuði hverjum (hægri ás) og rauða línan sýnir umframdauðsföll í prósentum (vinstri ás) sem í kjölfarið fylgdu. Á línuritinu er dregnir hringir sem sýna hvernig dauðsföllum fjölgar nokkrum vikum eftir að aukinn kraftur er settur í bólusetningarnar hverju sinni.
En aftur að fjölgun dauðsfallanna veturinn 21/22. Hvernig átti að gera grein fyrir þessari fjölgun dauðsfalla án þess að viðurkenna að dauðsföllin mætti rekja til bóluefnanna? Ákveðið var að skrifa dauðsföllin á Covid sjúkdóminn í þeirri von að stjórnvöld og almenningur tækju það trúanlegt. Það virðist hafa gengið eftir því til þessa dags hefur ekki orðið vart opinberrar umræðu um skýringar embættis landlæknis á dauðsföllunum á árinu 2022. Klippan er af heimasíðu embættis landlæknis og sýnir hvernig dauðsföllin á árinu 2022 voru bókuð sem af völdum Covid-19.
Í mörgum löndum standa yfir rannsóknir á atburðarás og ákvörðunum tengdum Covid-19 á liðnum árum. Tímabært er að við Íslendingar gerum það einnig. Það er þýðingarmikið til þess að læra megi af mistökunum þannig að þau endurtaki sig síður. Því miður virðist ýmislegt benda til að við stöndum fljótlega frammi fyrir sömu viðfangsefnum og á árinu 2020. Mikilvægt er að stjórnvöldum takist betur upp næst.
18.2.2024 | 17:38
Hefur fjármálaráðherra bein í nefinu til að taka slaginn við Pfizer?
Engar upplýsingar hafa verið gefnar um samningsskuldbindingar Íslands gagnvart Pfizer um kaup á bóluefnum hugsanlega allt fram til 2026. Bóluefnum sem þorri eldri borgara hefur tekið ákvörðun um að afþakka. Vonandi spyrnir fjármálaráðherra Íslands við fótum og neitar að greiða stórfé fyrir gagnslausa vöru. Efnið hefur skilið eftir sig sviðna jörð á Íslandi sem sjá má á 20 til 30 mánaðarlegum ótímabærum dauðsföllum.
Samningsgerðin um kaup ESB á 1.8 milljörðum bóluefnaskammta virðist hafa farið fram að hluta með SMS skilaboðum á milli forseta framkvæmdastjórnar ESB og forstjóra Pfizer. Af einhverri ástæðu fær eftirlitsaðili ESB ekki aðgang að skilaboðunum til að átta sig á hvernig þessi óhagstæði samningur komst á en hagsmunir kaupandans virðast hafa verið fyrir borð bornir við samningsgerðina. Myndin er af Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB og Albert Bourla forstjóra Pfizer.
Fyrir okkur Íslendinga skiptir fjárhagslega miklu máli hvort fjármálaráðherra hefur kjark til að taka slaginn við Pfizer með að stöðva greiðslu á reikningum fyrir bóluefni sem rannsóknir sýna að er þeim eiginleikum búið að það eykur líkur á að sá sem bóluefnið þiggur veikist af sjúkdómnum sem efnið á að fyrirbyggja.
Svar við fyrirspurninni (sjá mynd) hefur ekki borist þrátt fyrir ítrekanir og hefur kvörtun verið send til umboðsmanns Alþingis.
18.2.2024 | 01:39
Hversu lengi ætlar ríkisstjórnin að horfa aðgerðalaus á tugi ótímabærra dauðsfalla í mánuði hverjum?
Samkvæmt tölum landlæknis reyndist fjöldi dauðsfalla í desember s.l. vera 11,2% umfram meðaltal áranna 2016 til 2019 að teknu tilliti til mannfjöldaþróunar. Alls urðu ótímabæru dauðsföllin á fjórða ársfjórðungi 42 samanborið við 31 á þriðja ársfjórðungi. Þeim fjölgaði því um 36% á milli ársfjórðunga. Þessa fjölgun dauðsfalla er erfitt að skýra án þess að nefna covid mRNA bóluefnin sem hugsanlegan áhrifaþátt. Sú ákvörðun sóttvarnalæknis að hefja bólusetningar að nýju gegn covid í október eftir hlé frá í apríl sýnist hafa verið misráðin. Skaðinn af völdum efnanna á heilsu bólusettra mun halda áfram að koma í ljós á næstu mánuðum og misserum.
Evrópska hagfræðistofnunin Eurostat birtir mánaðarlega tölur um umframdauðsföll á Evrópska efnahagssvæðinu. Tölur Eurostat taka ekki tillit til mannfjöldaþróunar einstakra landa svæðisins. Engu að síður gefa þær góða hugmynd um þróun dauðsfallanna í samanburði landa. Samkvæmt tölum Eurostat voru umframdauðsföll í desember á Íslandi 25,2% og reyndust þau hæstu í Evrópu. Á meðfylgjandi súluriti sýna rauðu súlurnar þróun umframdauðsfalla á Íslandi eftir mánuðum á síðasta ári og bláu súlurnar meðaltal 27 landa ESB.
Raunalegt hefur verið að fylgjast með endurteknum tilraunum embættis landlæknis til að tala niður og breiða yfir umframdauðsföllin með vísan til mannfjöldaþróunar. Mismunandi aðferðafræði við útreikning umframdauðsfalla fækkar ekki dauðsföllunum. Ekki skiptir máli hvort horft er á tölur landlæknis eða Eurostat. Báðar reikniaðferðir staðfesta skelfilegan fjölda ótímabærra dauðsfalla.
17.2.2024 | 06:21
Þagnarmúr sérfræðinga á heilbrigðissviði um skaðsemi covid mRNA efnanna
16.2.2024 | 15:08
UNDUR OG STÓRMERKI
16.2.2024 | 11:35
ENN EITT EVRÓPUMETIÐ
16.2.2024 | 07:46
Hvað ætli hanskaklædd lagaumgjörð kosti í Frakklandi?
15.2.2024 | 13:54
Bandarískir eldri borgarar átta sig einnig
15.2.2024 | 07:50
Hvað hefðu dauðsföllin þurft að vera mörg?
14.2.2024 | 09:43