28.2.2025 | 10:19
Að taka við hörmulegu búi verður ekkert grín
Hvernig í ósköpunum stendur á því að fleiri Íslendingar látast hlutfallslega ár eftir ár en landsmenn annarra Evrópuþjóða? Embætti landlæknis hefur birt tölur yfir látna á síðasta ári. Fjölgaði látnum um 1,5% frá árinu 2023. Það er árinu þar sem Ísland reyndist með hæstu dánartíðni Evrópuþjóða miðað við meðaltal áranna 2017 til 2019 fyrir Covid-19. Tölur landlæknis staðfesta að þriðja árið í röð er Ísland með hvað hæsta hlutfall látinna í Evrópu. Nýjum landlækni er óskað velfarnaðar í störfum sínum. Ekki veitir henni af heillaóskum því hún tekur við vægast sagt hörmulegu búi fráfarandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra. Grunnforsenda þess að nýr landlæknir verði farsæll í starfi er að bera gæfu til að víkja hagsmunum hluthafa lyfjaframleiðenda til hliðar og setja heilsufar landsmanna í forgang. Með þeim eina hætti breyttra áherslna geta landsmenn átt von á að skelfileg staða Íslands meðal þeirra þjóða sem flest hafa umframdauðsföllin taki breytingum.
25.2.2025 | 06:43
Snúningshurðin
Að hátt settir starfsmenn opinberra lyfjaeftirlitsaðila geti gengið að vel launuðum stjórnunarstörfum hjá lyfjaframleiðendum vísum, svo framarlega sem þeir stuðli með ákvörðunum sínum hjá eftirlitsaðilanum að jákvæðri meðferð umsókna um markaðsleyfi lyfjum til handa, skapar mikla hættu á ákvörðunum þar sem heilsufarslegir hagsmunir almennings víkja fyrir fjárhagslegum hagsmunum hluthafa lyfjaframleiðenda. Viðhengd frásögn um starfsskipti byrjar ekki að lýsa þessu ólánsfyrirkomulagi en afleiðingarnar leyna sér því miður ekki.
24.2.2025 | 12:59
Verður viðtalið við Mel Gibson þúfan sem veltir hlassinu?
Frumvörp um að heimila sölu Ivermectin án lyfseðils (over the counter) eru nú til meðferðar í átta ríkjum USA. Sala Ivermectin án lyfseðils er þegar heimil í Tennessee. Ivermectin var sem kunnugt er sett út af sakramentinu af heilbrigðisyfirvöldum beggja vegna atlantsála af hagsmunagæslu fyrir lyfjaframleiðendur sem ella hefðu ekki fengið samþykkt neyðarleyfi Covid-19 bóluefnunum til handa þar sem grunnforsenda neyðarleyfisveitingar af hálfu lyfjaeftirlitsaðila er að ekki sé til staðar lyf sem gæti komið í stað bóluefnisins. Niðurstöður hundraða rannsókna staðfesta lækningamátt Ivermectin á Covid-19. Vaxandi athygli vekur virkni á krabbamein en ánægjulegar fréttir af bata krabbameinssjúklinga sem þegið hafa lyfjakokteil sem inniheldur Ivermectin berast af vaxandi tíðni. Nýlegt viðtal Mel Gibson í þætti Joe Rogan þar sem hann greindi frá hvernig Ivermectin hefði læknað þrjá vini sína sem þjáðust af krabbameini hefur að vonum vakið mikla athygli.
Í skýrslu sérfræðingahóps forsætisráðherra Alberta fylkis í Kanada er sérstaklega fjallað um Ivermectin en fljótlega kom í ljós að lyfið dró úr þörf fyrir innlagnir og fækkaði dauðsföllum á tímum Covid. Hversu mörgum mannslífum hefði mátt bjarga hér á landi með notkun lyfsins verður aldrei vitað en á heimasíðu Lyfjastofnunar er umfjöllun frá mars 2021 þar sem greint er frá afstöðu Lyfjastofnunar Evrópu sem mælir gegn notkun Ivermectin til varnar og meðferðar á Covid-19. Ritrýndar rannsóknarniðurstöður vísindamanna sem eiga það sammerkt að sýna fram á gagnsemi lyfsins sem meðferð við Covid-19 og birst hafa á síðustu þremur árum hafa ekki náð að breyta neikvæðu viðhorfi íslenskra heilbrigðisyfirvalda til Ivermectin. Hvers vegna íslensk heilbrigðisyfirvöld setja hagsmuni lyfjaframleiðenda framar heilsufari landsmanna heldur áfram að vera ráðgáta. Vera kann að fleirum en mér þyki í meira lagi furðulegt að lyf sem sannanlega hefði bjargað tugum mannslífa á covid tímum og líklegt er til að geta gagnast einhverjum þeirra mörgu sem greinast nú með illvíg krabbamein í kjölfar mRNA bólusetningar skuli enn vera litið hornaugu af heilbrigðisyfirvöldum. Það er eitthvað mikið að hér á landi. Og völundarsmiður þessa ófremdarástands hefur verið gerð að heilbrigðisráðherra. Eins og þrautreyndur blaðamaður til áratuga segir gjarnan þegar honum blöskrar. Þetta er ekki hægt að skálda.
23.2.2025 | 08:25
RFK Jr. tekinn til starfa
20.2.2025 | 14:32
Hvenær tekur Ruv Ragnar Reykás á mRNA efnin?
17.2.2025 | 06:37
Ráðlegging sérfræðinganna í Alberta
15.2.2025 | 15:47
Er hvítþvottur í farvatninu?
14.2.2025 | 11:58
Sinnuleysi umboðsmanns Alþingis
10.2.2025 | 11:32
Hver hefði trúað fráleitustu samsæriskenningu síðustu ára?
7.2.2025 | 10:23