31.5.2025 | 12:00
4 sæti á heimslistanum og í efsta sæti í Evrópu
Ísland er fjórða örvunarbólusettasta þjóð heimsins samkvæmt tölum WHO (tafla) og í efsta sæti Evrópuþjóða. Að Ísland sé í hópi þjóða Evrópu með hlutfallslega flest umframdauðsföllin kemur ekki á óvart þegar horft er til niðurstaðna rannsókna sem hver af annarri sýna fjölgun dauðsfalla af völdum Covid-19 samfara fleiri bólusetningum. Þrátt fyrir að örvunarbóluefninu hafi verið haldið stíft að eldri borgurum hefur fækkun þeirra ekki dugað til að stytta biðtímann eftir hjúkrunarrýmum sem haldið hefur áfram að lengjast. Á vef stjórnarráðsins er tilkynning um að forsætisráðherrann leiði ráðherranefnd sem ætlað er að átta sig á öldrun þjóðarinnar sem virðist koma stjórnvöldum á hverjum tíma í opna skjöldu. Vonandi horfir forsætisráðherrann fremur til fjölgunar hjúkrunarrýma en fækkunar vistmanna fyrir atbeina afurða lyfjaframleiðenda til lausnar vandanum.
30.5.2025 | 07:22
9 vikna biðtími eftir krabbameinsmeðferð
Heilbrigðisráðherra upplýsti landsmenn um að biðtíminn eftir meðferð við krabbameini sé orðinn mjög langur en hann er nú 9 vikur að meðaltali eða rúmlega tvöfalt lengri á Íslandi en ásættanlegt er talið á Norðurlöndum þar sem miðað er við að 4 vikur líði lengst frá greiningu til meðferðar. Í greininni fjöllum við Helgi Örn um sérstöðu Íslands með hækkandi dánartíðni meðan hún fer lækkandi hjá flestum Evrópuþjóðum enda faraldurinn löngu afstaðinn.
15.5.2025 | 14:35
Alzheimer slæmar fréttir og góðar
Nöturlegt var fyrir alzheimersjúka og aðstandendur að hlýða á vitnisburð nýs heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna í gær fyrir þingnefnd þar sem hann fullyrti að spilling innan heilbrigðisstofnana vestra væri EINA ástæða þess að ekki hefði enn fundist lækning við alzheimer sjúkdómnum. Fjárveitingar hefðu á grundvelli sviksamlegrar háttsemi verið látnar einskorðast við rannsókn á einni hugsanlegri orsök sjúkdómsins á sama tíma og aðrir möguleikar hefðu verið látnir ókannaðir. Ráðherrann taldi einsýnt að lækning við alzheimer hefði þegar fundist ef eðlilega hefði verið staðið að ráðstöfun fjármuna til rannsókna á sjúkdómnum. Þrátt fyrir að það sé fullseint fyrir marga sem haldnir eru sjúkdómnum var engu að síður ánægjulegt að heyra ráðherrann lýsa þeim staðfasta ásetningi og vissu að lækning við alzheimer myndi fljótt finnast. Frásögn Science lýsir einum þætti spillingarinnar sem ráðherrann vísaði til.
15.5.2025 | 07:51
Alma breytti dánarmeinaskráningum Þórólfs
14.5.2025 | 08:20
Engu er líkara en að menntun íslensku læknanna hafi dregist aftur úr
12.5.2025 | 08:42
Nýjum tilfellum krabbameins fjölgar um allt að 40%
11.5.2025 | 11:43
76% fjölgun bjargráðsígræðslna á LSH
10.5.2025 | 13:13
13% fækkun fæðinga á LSH veturinn 2021/2022
10.5.2025 | 09:52
Að bera í bakkafullan læk frásagna af gagnsleysi skaðlegra bóluefna
9.5.2025 | 07:43