8.6.2024 | 05:55
Fæðingum fækkar á fyrsta ársþriðjungi um 5,8%
Línuritið sýnir samanburð á þróun fjölda fæðinga á Íslandi frá árinu 2019 og þróun fjölda kvenna á aldrinum 15 til 44 ára yfir sama tímabil. Þar sem Hagstofa Íslands hefur ekki enn birt tölur um fæðingar á árinu 2023 er notast við tölur úr starfsemisupplýsingum Landspítala fyrir árið 2023 og fyrstu 4 mánuði ársins 2024 sem sýna 5,8% fækkun fæðinga á spítalanum miðað við sömu mánuði 2023. Að notast við tölur spítalans til að áætla fjölda fæðinga á landinu öllu er gerlegt þar sem fæðingar á spítalanum hafa haldist hlutfallslega af heildarfjölda fæðinga á landinu um margra ára skeið.
Glöggt má greina á línuritinu hvernig lokanir og fjarvinna á fyrstu misserum covid, fyrir tilkomu bóluefnanna, leiðir til fjölgunar fæðinga. Eftir tilkomu bóluefnanna 2021 tekur fæðingum að fækka. Fækkunin var í fyrstu talin eðlileg afleiðing fyrri fjölgunar þar sem barneignum hafði verið flýtt. Haldreipi heilbrigðisyfirvalda í þeirri skýringu er ekki lengur til staðar. Fækkun fæðinga í kjölfar covid bólusetninga er ekki einskorðuð við Ísland. Hliðstæða þróun má sjá í tölum um fæðingar víða um heim.
7.6.2024 | 12:18
Gaslýsing í yfirgír
Gaslýsingin við að hylja slóð alvarlegra aukaverkana covid bóluefnanna hefur ýmsar birtingarmyndir. Meðal annars frétt í Daily Mail þar sem fjallað er um ótrúlegan vöxt krabbameins um heim allan í kjölfar faraldursins og örsökin sögð veirunnar. Til að gæta sanngirni skal tekið fram að læknarnir sem vísað er til í fréttinni taka fram að þeir útiloki ekki að mRNA efnin séu orsakavaldurinn.
7.6.2024 | 07:28
Forstjóri Moderna um skaðann af DNA í framleiðsluferli mRNA bóluefna
Kanadískir sérfræðingar hafa staðfest DNA mengun í lyfjaglösum undan covid mRNA bóluefnum Pfizer og Moderna í Ástraliu en rannsóknarstofan hafði áður sannreynt tilvist DNA í bóluefnaglösum í Kanada sem voru langt yfir leyfilegum mörkum þar í landi.
Í skýrslunni staðfestir Dr. Speicher að tilbúin DNA mengun í Pfizer bóluefninu var meira en 350 sinnum yfir skammtamörkum sem Ástralska lyfjaeftirlitið (TGA) setur (34.900% yfir) og yfir 200 sinnum yfir skammtamörkum fyrir Moderna (19.900% yfir).
DNA mengun mRNA bóluefnanna skýrir mikinn vöxt krabbameins bæði hérlendis og erlendis. Það sést best þegar varnaðarorð forstjóra Moderna eru lesin sem finna má í ritgerð um mikilvægi þess DNA sé fjarlægt í framleiðsluferli mRNA bóluefna. Þau taka af allan vafa um skaðsemi DNA mengunarinnar í mRNA bóluefnunum og hættuna sem af henni leiðir. Í klippum eru mynd af skýrslunni um mengunina og varnaðarorð forstjóra um skaðsemi DNA mengunar í bóluefnum.
Það sem er skelfilegast við þetta er að stjórnendum lyfjaframleiðendanna hefur verið kunnugt um DNA mengun bóluefnanna langt umfram leyfileg viðmið allt frá upphafi bólusetninga. Hér á Íslandi hljóta að vakna spurningar hjá almenningi og alþingismönnum:
- Hversu lengi hefur Embætti landlæknis verið kunnugt um DNA mengun bóluefnanna?
- Var haldið áfram að bólusetja eldri borgara á Íslandi eftir að embættinu varð kunnugt um mengun efnanna og hættuna á alvarlegum aukaverkunum sem hugsanlega myndu af hljótast?
Aukaverkunum sem eru fyrir allra augum og snerta flestar fjölskyldur á Íslandi í formi fjarvista frá vinnu vegna ýmissa alvarlegra sjúkdóma allt til dauðsfalla náinna ættingja og vina. Tölur landlæknis og Eurostat um umframdauðsföll sýna svart á hvítu hvernig bóluefnin hafa leikið landsmenn.
6.6.2024 | 04:50
Íslensk framleiðsla hagtalna í skötulíki
5.6.2024 | 09:06
Ísland í öðru sæti 47 vestrænna ríkja
4.6.2024 | 12:19
Meginstraumsmiðill snýr við blaðinu
2.6.2024 | 14:59
Getur verið?
2.6.2024 | 08:34
Tekist hefur að telja fjölda látinna á Íslandi í mars
1.6.2024 | 22:13
Stórslysi forðað
Nýjustu færslur
- Alvarlegar aukaverkanir 5,3% ungbarna í klínískri rannsókn Me...
- 3 af 123 krabbameinslyfjum uppfylltu fjögur skilyrði FDA fyri...
- 24 sinnum fleiri skaðatilkynningar en vegna allra annarra ból...
- Umtalsverð aukning umframdauðsfalla í Japan í kjölfar örvunar...
- VAERS með 34 íslensk dauðsföll 2021 og 2022