Leita í fréttum mbl.is

Margföld hætta á heilablóðfalli

Covid mRNA bóluefnin eru 200 sinnum líklegri til að valda blóðtappa í heila en öll önnur bóluefni samanlagt samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Dr. Peter McCullough og samstarfsmanna. Rannsóknin byggir á talningu skaðatilkynninga yfir 34 ára skeið vegna blóðtappa í heila af völdum bólusetninga í gagnagrunn CDC sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna VAERS á tímabilinu janúar 1990 til og með desember 2023.

Niðurstöður sýna að líkur á blóðtappa í heila eftir að hafa þegið bólusetningu með Covid mRNA bóluefni á síðustu þremur árum eru 1.000 faldar miðað við líkur á blóðtappa í heila af völdum bólusetningar gegn inflúensu á síðustu 34 árum. Rannsóknin staðfesti að konur sem komnar eru úr barneign er hættara við heilablóðfalli.

Að fengnum þessum niðurstöðum ásamt öðrum um skaðsemi mRNA efnanna ítreka læknarnir fyrri ráðleggingar um tafarlausa stöðvun á notkun efnanna.Heilablodfall likur


Hræðsluáróður hefst að nýju

Að það teljist tilefni forsíðufréttar að örfáir greinist með Covid síðustu vikurnar vekur spurningar. Hugsanlega er blaðið að leggja sóttvarnalækni lið við að undirbúa landsmenn fyrir Covid mRNA örvunarbólusetningu haustsins. Ekki mun veita af allri tiltækri aðstoð við að telja eldri borgara á að þiggja örvunarbólusetningu eftir frekar dræma þátttöku í fyrra haust. Fréttir af umframdauðsföllum og skaða sem rekja má til mRNA efnanna hjálpa ekki til. Blaðsíða eftir blaðsíðu af dánartilkynningum í kjölfar október bólusetninganna í fyrra haust hjálpa heldur ekki.CDC autumn booster 2024


mbl.is Covid-19 aftur á skrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

600 starfsmenn í fullu starfi höfðu ekki undan

Í málshöfðun bandarísku ríkjanna fimm (Kansas og fl.) á hendur Pfizer kemur fram að lyfjaframleiðandanum höfðu í lok febrúar 2021 borist 158.893 tilkynningar um aukaverkanir í gagnagrunn fyrirtækisins, þar á meðal tilkynningar um 1.223 dauðsföll. Tilkynningarnar um aukaverkanir af völdum mRNA efnanna voru svo margar að Pfizer réð 600 einstaklinga í fullt starf til að vinna úr tilkynningunum og höfðu þeir hvergi undan og því gerði Pfizer ráðstafanir til að ráða 1.800 starfsmenn til viðbótar til að vinna úr tilkynningunum sem hlóðust upp.

Í fréttatilkynningu Pfizer 18. febrúar 2021 láðist lyfjaframleiðandanum að geta aukaverkana á æxlunarfæri kvenna sem fengið höfðu mRNA sprautuna. Jafnfram var þess ekki getið að ein af hverjum tíu konum (52) sem þáðu bóluefnið á meðgöngu tilkynntu um fósturlát, margar þeirra innan nokkurra daga frá bólusetningu.

Þegar komið var fram í apríl 2022 höfðu Pfizer borist fleiri en 90.000 tilkynningar um aukaverkanir tengda covid bóluefninu á æxlunarfæri kvenna, þar á meðal óvenju miklar blæðingar eða truflanir af ýmsum toga á tíðahringnum.Pfizer booster test 12 indiv over 65


Nöturlegur lestur ákæruatriða

Málshöfðun Kansas ríkis gegn Pfizer hefur þyngst þar sem a.m.k. fjögur önnur ríki hafa ákveðið að fylkja sér um málshöfðunina gegn lyfjaframleiðandanum. Í klippunni má sjá helstu atriði ákærunnar en í hlekk er nánari grein gerð fyrir ákæruatriðum....

H5N1 bóluefnið varasamara en mRNA covid efnið

Niðurstöður klínískra rannsókna á bóluefninu gegn fuglaflensu H5N1 leiða í ljós að þeir bólusettu eru fimm sinnum líklegri að deyja en þeir sem fengu lyfleysuna. Bóluefnið er gefið í 2 sprautum með þriggja vikna millibili. Finnar hafa riðið á vaðið með...

Fjórðungur þeirra sem þáðu Covid bólusetningu sjá eftir því

Niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar vestra sýna að 33% bandarísks almennings er sammála ummælum hjartalæknisins Dr. Peter McCullough sem hann lét falla í janúar 2023 þegar hann sagði bóluefnin verða fjölda fólks að aldurtila. "The vaccine is killing...

Að gengisfella gæðahugtakið

Í ársskýrslu landlæknis fyrir síðasta ár er fjallað um hvernig hagstofan hafði milligöngu um að Embætti landlæknis fékk viðurkenningu Eurostat 2023 sem sjálfstæður framleiðandi opinberrar tölfræði um lýðheilsu og heilbrigðisþjónustu. Telur landlæknir að...

Covid mRNA efnin og dvínandi frjósemi

Í fréttatilkynningu Hagstofu Íslands 9.5.23 um fæðingar á árinu 2022, tölur sem Embætti landlæknis hefur ekki uppfært á eigin heimasíðu (klippa), kemur fram að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi á árinu 2022 voru 4.391 og hafði fækkað um 488 börn frá...

Sjálfsvígstíðni íslenskra kvenna

Samkvæmt gagnagrunni OECD sem sýnir tíðni sjálfsvíga kvenna aðildarlanda samtakanna á árinu 2021 skipar Ísland sér í sjötta sæti landa með fjölda sjálfsvíga á hverjar 100.000 konur. Embætti landlæknis hlýtur að hafa framkvæmt greiningu á ástæðum þessa....

Líkur á að velta fyrir sér eigin kynferði eða kynhneigð rúmlega fjórtánfaldast

Niðurstöður könnunar sem Steve Kirsch framkvæmdi meðal þeirra sem fylgjast með skrifum hans eru forvitnilegar. Niðurstöðurnar hafa verið yfirfarnar og staðfestar af stærðfræðingi. Steve Kirsch er verkfræðingur frá MIT og þekktur sem annar þeirra sem...

Næsta síða »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband