25.2.2025 | 06:43
Snúningshurðin
Að hátt settir starfsmenn opinberra lyfjaeftirlitsaðila geti gengið að vel launuðum stjórnunarstörfum hjá lyfjaframleiðendum vísum, svo framarlega sem þeir stuðli með ákvörðunum sínum hjá eftirlitsaðilanum að jákvæðri meðferð umsókna um markaðsleyfi lyfjum til handa, skapar mikla hættu á ákvörðunum þar sem heilsufarslegir hagsmunir almennings víkja fyrir fjárhagslegum hagsmunum hluthafa lyfjaframleiðenda. Viðhengd frásögn um starfsskipti byrjar ekki að lýsa þessu ólánsfyrirkomulagi en afleiðingarnar leyna sér því miður ekki.
24.2.2025 | 12:59
Verður viðtalið við Mel Gibson þúfan sem veltir hlassinu?
Frumvörp um að heimila sölu Ivermectin án lyfseðils (over the counter) eru nú til meðferðar í átta ríkjum USA. Sala Ivermectin án lyfseðils er þegar heimil í Tennessee. Ivermectin var sem kunnugt er sett út af sakramentinu af heilbrigðisyfirvöldum beggja vegna atlantsála af hagsmunagæslu fyrir lyfjaframleiðendur sem ella hefðu ekki fengið samþykkt neyðarleyfi Covid-19 bóluefnunum til handa þar sem grunnforsenda neyðarleyfisveitingar af hálfu lyfjaeftirlitsaðila er að ekki sé til staðar lyf sem gæti komið í stað bóluefnisins. Niðurstöður hundraða rannsókna staðfesta lækningamátt Ivermectin á Covid-19. Vaxandi athygli vekur virkni á krabbamein en ánægjulegar fréttir af bata krabbameinssjúklinga sem þegið hafa lyfjakokteil sem inniheldur Ivermectin berast af vaxandi tíðni. Nýlegt viðtal Mel Gibson í þætti Joe Rogan þar sem hann greindi frá hvernig Ivermectin hefði læknað þrjá vini sína sem þjáðust af krabbameini hefur að vonum vakið mikla athygli.
Í skýrslu sérfræðingahóps forsætisráðherra Alberta fylkis í Kanada er sérstaklega fjallað um Ivermectin en fljótlega kom í ljós að lyfið dró úr þörf fyrir innlagnir og fækkaði dauðsföllum á tímum Covid. Hversu mörgum mannslífum hefði mátt bjarga hér á landi með notkun lyfsins verður aldrei vitað en á heimasíðu Lyfjastofnunar er umfjöllun frá mars 2021 þar sem greint er frá afstöðu Lyfjastofnunar Evrópu sem mælir gegn notkun Ivermectin til varnar og meðferðar á Covid-19. Ritrýndar rannsóknarniðurstöður vísindamanna sem eiga það sammerkt að sýna fram á gagnsemi lyfsins sem meðferð við Covid-19 og birst hafa á síðustu þremur árum hafa ekki náð að breyta neikvæðu viðhorfi íslenskra heilbrigðisyfirvalda til Ivermectin. Hvers vegna íslensk heilbrigðisyfirvöld setja hagsmuni lyfjaframleiðenda framar heilsufari landsmanna heldur áfram að vera ráðgáta. Vera kann að fleirum en mér þyki í meira lagi furðulegt að lyf sem sannanlega hefði bjargað tugum mannslífa á covid tímum og líklegt er til að geta gagnast einhverjum þeirra mörgu sem greinast nú með illvíg krabbamein í kjölfar mRNA bólusetningar skuli enn vera litið hornaugu af heilbrigðisyfirvöldum. Það er eitthvað mikið að hér á landi. Og völundarsmiður þessa ófremdarástands hefur verið gerð að heilbrigðisráðherra. Eins og þrautreyndur blaðamaður til áratuga segir gjarnan þegar honum blöskrar. Þetta er ekki hægt að skálda.
23.2.2025 | 08:25
RFK Jr. tekinn til starfa
Nýr heilbrigðisráðherra Bandarikjanna, Robert F. Kennedy Jr., ávarpaði starfsmenn ráðuneytisins á fyrsta starfsdegi. Sagði hann tölur sýna að landsmenn væru þjakaðir sem aldrei fyrr af krónískum sjúkdómum eins og t.d. offitu, fíkn, krabbameini, ófrjósemi og þunglyndi og í meira mæli en þekktist meðal annarra þjóða. Ljóst væri öllum að eitthvað mikið hefði farið úrskeiðis. Hvers vegna svona væri komið sagði hann hvorki sig né aðra vita nákvæmlega. Verkefnið væri að finna ástæðuna og ráða á þessu bót. Meðal fyrstu verka ráðherrans var að láta afboða löngu dagsettan fund ráðgjafarráðs Sóttvarnastofnunarinnar CDC um bólusetningar en ráðherrann hefur gagnrýnt störf ráðsins sem handgengið er lyfjaframleiðendum og ekki óháð í ráðgjöf sinni. Jafnframt var eitt af hans fyrstu verkum að gefa fyrirmæli um breytta tilhögun kynninga til almennings á bólusetningum i þá veru að hætta áróðri og leggja áherslu á upplýst samþykki með fræðslu um kosti og áhættu bóluefnanna. Ef marka má frétt Daily Mail eru læknar og heilbrigðisstarfsfólk felmtri slegið af tilhugsuninni um að þurfa nú að upplýsa foreldra um hættuna á skaðlegum aukaverkunum bóluefnanna á börnin.
20.2.2025 | 14:32
Hvenær tekur Ruv Ragnar Reykás á mRNA efnin?
17.2.2025 | 06:37
Ráðlegging sérfræðinganna í Alberta
15.2.2025 | 15:47
Er hvítþvottur í farvatninu?
14.2.2025 | 11:58
Sinnuleysi umboðsmanns Alþingis
10.2.2025 | 11:32
Hver hefði trúað fráleitustu samsæriskenningu síðustu ára?
7.2.2025 | 10:23
Stefnir í bann við notkun mRNA bóluefnanna
4.2.2025 | 05:26