9.12.2024 | 10:29
Breskir læknar og hjúkrunarfræðingar áhugalitlir um örvunarbólusetningu
Áskorun stjórnenda Bresku heilbrigðisþjónustunnar (NHS) til starfsmanna um bólusetningu gegn Covid-19 hefur til þessa skilað takmörkuðum árangri þar sem 86% starfsmanna hafa ekki þegið Covið sprautu og 75% þeirra hafa enn ekki látið bólusetja sig gegn inflúensu en efnunum er haldið stíft að almenningi með auglýsingaherferð í sjónvarpi og útvarpi. Læknir NHS taldi aukaverkanir mRNA efnanna, sem starfsmenn og sjúklingar hafa reynt, vera áhrifaþátt í bóluefnahiki starfsmannanna. Frá 2019, eða ári fyrir Covid, til 2024 hefur veikindadögum starfsmanna fjölgað um 40 til 50%.