18.2.2024 | 17:38
Hefur fjármálaráðherra bein í nefinu til að taka slaginn við Pfizer?
Engar upplýsingar hafa verið gefnar um samningsskuldbindingar Íslands gagnvart Pfizer um kaup á bóluefnum hugsanlega allt fram til 2026. Bóluefnum sem þorri eldri borgara hefur tekið ákvörðun um að afþakka. Vonandi spyrnir fjármálaráðherra Íslands við fótum og neitar að greiða stórfé fyrir gagnslausa vöru. Efnið hefur skilið eftir sig sviðna jörð á Íslandi sem sjá má á 20 til 30 mánaðarlegum ótímabærum dauðsföllum.
Samningsgerðin um kaup ESB á 1.8 milljörðum bóluefnaskammta virðist hafa farið fram að hluta með SMS skilaboðum á milli forseta framkvæmdastjórnar ESB og forstjóra Pfizer. Af einhverri ástæðu fær eftirlitsaðili ESB ekki aðgang að skilaboðunum til að átta sig á hvernig þessi óhagstæði samningur komst á en hagsmunir kaupandans virðast hafa verið fyrir borð bornir við samningsgerðina. Myndin er af Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB og Albert Bourla forstjóra Pfizer.
Fyrir okkur Íslendinga skiptir fjárhagslega miklu máli hvort fjármálaráðherra hefur kjark til að taka slaginn við Pfizer með að stöðva greiðslu á reikningum fyrir bóluefni sem rannsóknir sýna að er þeim eiginleikum búið að það eykur líkur á að sá sem bóluefnið þiggur veikist af sjúkdómnum sem efnið á að fyrirbyggja.
Svar við fyrirspurninni (sjá mynd) hefur ekki borist þrátt fyrir ítrekanir og hefur kvörtun verið send til umboðsmanns Alþingis.
18.2.2024 | 01:39
Hversu lengi ætlar ríkisstjórnin að horfa aðgerðalaus á tugi ótímabærra dauðsfalla í mánuði hverjum?
Samkvæmt tölum landlæknis reyndist fjöldi dauðsfalla í desember s.l. vera 11,2% umfram meðaltal áranna 2016 til 2019 að teknu tilliti til mannfjöldaþróunar. Alls urðu ótímabæru dauðsföllin á fjórða ársfjórðungi 42 samanborið við 31 á þriðja ársfjórðungi. Þeim fjölgaði því um 36% á milli ársfjórðunga. Þessa fjölgun dauðsfalla er erfitt að skýra án þess að nefna covid mRNA bóluefnin sem hugsanlegan áhrifaþátt. Sú ákvörðun sóttvarnalæknis að hefja bólusetningar að nýju gegn covid í október eftir hlé frá í apríl sýnist hafa verið misráðin. Skaðinn af völdum efnanna á heilsu bólusettra mun halda áfram að koma í ljós á næstu mánuðum og misserum.
Evrópska hagfræðistofnunin Eurostat birtir mánaðarlega tölur um umframdauðsföll á Evrópska efnahagssvæðinu. Tölur Eurostat taka ekki tillit til mannfjöldaþróunar einstakra landa svæðisins. Engu að síður gefa þær góða hugmynd um þróun dauðsfallanna í samanburði landa. Samkvæmt tölum Eurostat voru umframdauðsföll í desember á Íslandi 25,2% og reyndust þau hæstu í Evrópu. Á meðfylgjandi súluriti sýna rauðu súlurnar þróun umframdauðsfalla á Íslandi eftir mánuðum á síðasta ári og bláu súlurnar meðaltal 27 landa ESB.
Raunalegt hefur verið að fylgjast með endurteknum tilraunum embættis landlæknis til að tala niður og breiða yfir umframdauðsföllin með vísan til mannfjöldaþróunar. Mismunandi aðferðafræði við útreikning umframdauðsfalla fækkar ekki dauðsföllunum. Ekki skiptir máli hvort horft er á tölur landlæknis eða Eurostat. Báðar reikniaðferðir staðfesta skelfilegan fjölda ótímabærra dauðsfalla.