Leita í fréttum mbl.is

Fíllinn í herberginu – viðbót

Hvernig einhverfu hefur fjölgað á liðnum árum er ógnvænlegt. Á heimasíðu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar leynist lítt dulbúið neyðarkall þar sem segir:

„Hvað sem líður mögulegum skýringum á aukningunni, þá er hún staðreynd og alvarlegt ástand hefur skapast í þjónustu við einhverft fólk á öllum aldri þar sem viðbrögð kerfisins fram til þessa hafa verið afar hæg.“

Þekkt er hvað mikilvægt er að greina einhverfu snemma. Það eykur líkur á að meðferð dragi úr einkennum einhverfu og getur aukið lífsgæði einstaklinganna til muna. Ef horft er til þróunarinnar í USA og spáð fyrir um (sjá rauðu súlurnar) hvert stefnir á næstu árum er ljóst að börnum sem greinast á einhverfurófinu mun fjölga mikið. Ekki er ástæða til að ætla að fjölgunin verði jafn mikil hérlendis og vestra þar sem bólusetningar barna hér á landi eru ekki jafn tíðar og í Bandaríkjunum. Engu að síður er brýnt að greina fyrr og huga betur en gert hefur verið að meðferð barna hér á landi sem greinast með einhverfu.Tidni einhverfu USA spa


Fíllinn í herberginu

Á heimasíðu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar kemur fram að einhverfa var sjaldgæf fötlun sem allt til 1980 greindist einungis hjá 3 til 5 af hverjum 10.000. Nú telur RGR að algengið sé komið yfir 2% eða 20 á hverja 1.000. Að skýra einhverfu með erfðum dugar því ekki lengur. Til þess er fjölgun greininga of mikil og leita þarf annarra skýringa.

Að nefna barnabóluefnin til sögunnar sem hugsanlegan orsakavald faraldurs einhverfu hefur verið eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. En tilkoma covid mRNA bóluefnanna og hvernig kastað var til höndum við gerð þeirra hefur opnað augu almennings og rýrt traust í garð lyfjaframleiðenda. Að verða vitni að því hvernig heilsa og velferð almennings víkur fyrir fjárhagslegum hagsmunum sem endurspeglast í áframhaldandi notkun bóluefnanna þrátt fyrir traustar vísbendingar um skaðsemi þeirra vekur menn til umhugsunar um aðra framleiðslu fyrirtækjanna á bóluefnum.

Klippan sýnir þróun fjölda barnabólusetninga í Bandaríkjunum á liðnum áratugum en þeim hefur fjölgað mjög og voru orðnar 76 nýlega. Ekki er annað hægt en að vorkenna amerískum börnum þegar horft er til þess að 609 bóluefni eru í þróun og eftirlitsaðilar vestra í vasa lyfjaframleiðenda. Hérlendis eru sprauturnar færri þó þeim hafi einnig fjölgað en ítök lyfjaframleiðenda eru enn sem komið er ekki eins mikil í Lyfjastofnun Evrópu en þaðan kemur boðskapurinn til Íslands. Recommended doses usa

Súluritið sýnir þróun fjölda 8 ára barna á einhverfurófi í USA frá aldamótum.

Tidni einhverfu USA

 


Bloggfærslur 25. febrúar 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband