Leita í fréttum mbl.is

522% fjölgun samþykktra umsókna um bætur

Dr. William Makis læknir og sérfræðingur á sviði ónæmis, krabbameins og röntgen greinir í pósti frá hvernig Covid-19 bólusettum vegnar áberandi verr í og eftir skurðaðgerðir. Bólusettir séu í aukinni hættu á að fá blóðtappa í aðgerð eða stuttu eftir með alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum.

Samkvæmt tölum breskra stjórnvalda varð mikil fjölgun samþykktra umsókna um bætur (Personal Independence Payment PIP) þar í landi eftir að byrjað var að bólusetja gegn covid. Fjölgaði samþykktum umsóknum um bæturnar af blóðtengdum ástæðum milli áranna 2020 til 2022 um 522%. Fjölgun samþykktra umsókna um bætur vegna blóðtappatengdra sjúkdóma var 162% og blóðflögutengdar ástæður lágu að baki 221% fjölgun umsókna.

Ekki er unnt að skýra þessa miklu fjölgun með “long covid” að mati sérfræðilæknisins. Telur hann einsýnt að bótaþörfin stafi af völdum Covid-19 bóluefnanna.

En hvað er til ráða ef þú hefur þegið covid bóluefni og átt ekki annarra kosta völ en að fara í uppskurð? Dr. Makis ráðleggur þér að upplýsa læknana um að þú sért covid bólusett/ur og því í aukinni hættu á að fá blóðtappa í aðgerðinni eða stuttu eftir.PIP voxtur 20 22

Makis um blodtappa kvenna


Eru manngerðar hamfarir í farvatninu – aftur?

Þegar stofnendur fyrirtækja og stærstu eigendur selja hlutabréf í fyrirtækjum sínum er eftir því tekið á verðbréfamarkaði:

  • Bezos, stofnandi Amazon, seldi hlutabréf í fyrirtækinu á 9 viðskiptadögum í febrúar fyrir USD 8,5 milljarða eða 1.190 milljarða ISK. Til samanburðar eru áætlaðar tekjur íslenska ríkisins samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2024 1.356 milljarðar.
  • Zuckerberg, stofnandi Facebook, innleysti 50 milljón hluti í nóv. og des. á síðasta ári fyrir USD 400 milljónir. Salan er sú fyrsta í tvö ár.
  • Forstjóri JFMorgan, Dimon, seldi fyrir USD 150 milljónir og vekur salan sérstaka athygli þar sem hún er sú fyrsta á 18 ára ferli hans sem forstjóra fjárfestingabankans.

Move along, nothing to see here - kann einhver að segja. Mennirnir eru aðeins að innleysa lítinn hluta hlutabréfaeignar sinnar eftir mikla hækkun hlutabréfaverðs. Kannski. En þegar sölurnar eru metnar í samhengi þá kunna þær að vera vísbending um og undanfari atburða sem munu hafa markverð áhrif til lækkunar á hlutabréfamarkaði.

Í hugann kemur fleyg setning úr Oscars verðlaunaðri kvikmynd frá 1980 hvers heiti kann að lýsa komandi atburðum á markaði; „I love the smell of napalm in the morning.”


Bloggfærslur 14. mars 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband