Leita í fréttum mbl.is

Valdaframsalið til WHO

Í The Telegraph er grein eftir Esther McVey þingmann og ráðherra í bresku ríkisstjórninni sem fjallar um fyrirhugaðar breytingar á reglum WHO og nýja faraldurssáttmálann. Greinin, sem er að baki áskriftarveggs, er hughreystandi fyrir þau okkar sem er umhugað um að ákvarðanir á sviði heilbrigðismála verði teknar hér á landi komi til faraldurs. Að það verði okkar kjörnu fulltrúar sem ákveði hvort börnum verður haldið utan skóla, hvort við verðum skylduð til að þiggja óreynd bóluefni, hvort við höfum heimild til að ferðast o.sv.frv. Að þessar grundvallarákvarðanir um daglegt líf hér á landi verði ekki teknar af forstjóra WHO. Vonandi ná bresk stjórnvöld og fleiri þjóðir að koma í veg fyrir að drögin að breyttum reglum og nýr faraldurssáttmáli verði samþykkt óbreytt á fundi stofnunarinnar í maí n.k.Screenshot 2024-03-31 at 11.05.05

Screenshot 2024-03-31 at 11.06.05

Screenshot 2024-03-31 at 11.06.33


Rannsókn CDC staðfestir að mRNA bóluefnið nær ekki lágmarksviðmiði

Niðurstöður könnunnar CDC staðfesta gagnsleysi covid mRNA efnanna sem smitvarnar þegar bólusetningar forðuðu einungis 38% einstaklinga í áhættuhópum frá spítalainnlögn á fyrstu tveimur mánuðum eftir bólusetningu. Hlutfallið lækkaði í 34% 2 til 4 mánuðum frá sprautu. Hingað til hefur ekki verið talið réttlætanlegt að nota bóluefni sem ekki ná 50% smitvörn. Engum kemur á óvart að CDC túlki niðurstöður rannsóknarinnar bóluefnunum í vil þannig að réttlætanlegt sé að halda áfram notkun þeirra. Annað væri áfellisdómur um misvitrar eigin ákvarðanir.

Bandaríkjamenn hafa áttað sig á tilgangsleysi bólusetninganna með covid mRNA efnunum þegar einungis 14% einstaklinga í áhættuhópum telja heilbrigði sínu fyrir bestu að þiggja bóluefnið. Almenningur telur ávinninginn af notkun efnanna ekki vega upp á móti áhættunni þegar í nærumhverfi fjölskyldu og vina blasa við dæmi um skaða og dauðsföll af völdum bóluefnanna.

Ljóst er að covid mRNA bóluefnin hafa ekki staðið undir væntingum og almenningur er þess meðvitaður. Framleiðslu þeirra hefði verið hætt ef ekki kæmu til fyrirframgerðir samningar ríkisstjórna um kaup mRNA efnanna til næstu ára.

Ákvörðunin um að halda áfram notkun bóluefnanna hér á landi þrátt fyrir vitneskju um skaðsemi þeirra auk gagnsleysis sem smitvarnar kallar á endurskoðun. Hana er ekki lengur hægt að verja á grundvelli skorts á vísindalegum rökum. Áhugavert verður að hlýða á fyrirlestur Dr. Aseem Malhotra hjartalæknis á Hótel Natura 4. apríl n.k. um skaðann af völdum efnanna og hvernig hann mun rökstyðja ráðleggingu til heilbrigðisyfirvalda um tafarlausa stöðvun á notkun þeirra.TSN um CDC rannsokn


Bloggfærslur 31. mars 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband