Leita í fréttum mbl.is

Örugga vörnin gegn sjúkdómi X

Í hlekknum er póstur fyrir áhugasama um bóluefnaþróun. Í evrópsku pípunum eru 100 bóluefni á mismunandi stað í undirbúningsferli gagnvart EMA evrópska lyfjaeftirlitinu. Miklum fjármunum er varið til að undirbúa bóluefni við „sjúkdómi X“ þannig að unnt verði að bólusetja heimsbyggðina á augabragði þegar veiran (vonandi ekki manngerð eins og sú síðasta) gerir vart við sig.

Að sjálfsögðu hvarflar ekki að nokkurm manni annað en að undirbúningurinn helgist af einlægum áhuga á heilbrigði mannkyns. Hefur örugglega ekkert með hagsmuni hluthafa lyfjaframleiðenda að gera. Bill Gates var heppinn þegar hann fjárfesti korteri fyrir covid í BioNTech sem framleiðir mRNA bóluefnið með Pfizer. Það verður áhugavert að fylgjast með í hvaða lyfjaframleiðanda og hvenær Bill „freistar gæfunnar“ að nýju.Screenshot 2024-03-31 at 15.18.39


Birtingarmyndir leyndarhyggjunnar

Hvernig embætti landlæknis heldur upplýsingum frá almenningi hefur ýmsar birtingarmyndir. Klippan að neðan endurspeglar metnaðarleysi og leyndarhyggju að covid afstöðnu. Tölulegar stærðir sem sýna skaðlegar afleiðingar Covid mRNA bóluefnanna eru ekki birtar á vefsíðu embættisins. Þar á meðal hvernig bóluefnin hafa skaðað heilbrigði barnshafandi kvenna og afkvæma. Að nýjustu upplýsingar á heimasíðu embættis landlæknis um fæðingar séu frá árinu 2020 staðfestir hverfandi virðingu fyrir sjálfsögðum aðgangi landsmanna að upplýsingum.Landlæknir fæðingar 2020

Önnur birtarmynd upplýsingaóreiðu embættis landlæknis er þegar landsmönnum er gert ókleift að kynna sér fréttabréf sóttvarnalæknis um öndunarfærasjúkdóma fyrir viku 11 með því að nota brotinn hlekk sem tilvísun. Í afkima útgefins efnis á heimsíðunni fannst beinn hlekkur á pdf skjalið. Eins og fréttabréfið ber með sér er ekki orði vikið að skyndilegri afturvirkri fjölgun greindra covid tilvika frá og með viku 35 til viku 47.brotinn hlekkur


Bloggfærslur 1. apríl 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband