Leita í fréttum mbl.is

Almenningur vestra kveikir á skaða bóluefnanna

Sóttvarnastofnun bandaríkjanna CDC lætur kanna vikulega hvernig bólusetningum gegn covid, inflúensu og RSV miðar. Í lok mars höfðu 14,1% barna þegið örvunarsprautu vetrarins gegn covid. Vestra er covid bóluefninu haldið að öllum almenningi óháð aldri allt niður í smábörn. 22,6% fullorðinna (18+) höfðu látið sprauta sig, þar á meðal 42,1% 65 ára og eldri. Það eru heldur fleiri en hér á landi þar sem 25,7% 60+ höfðu þegið sprautu um áramót. Íslenskur almenningur er betur upplýstur um hætturnar sem fylgja efnunum.CDC bolus lok mars 24

CDC telur bólusetningarþekju landsmanna gegn Covid-19 of lága og mælir með því að allir 6 mánaða og eldri haldi við örvunarbólusetningum gegn covid. Forstjóri CDC boðar 10 örvunarsprautuna gegn covid í haust. Vonandi ber hérlendum heilbrigðisyfiröldum gæfa til að bjóða landsmönnum ekki upp á 10 sprautuna í haust. Þeim ætti að vera í fersku minni skaðinn sem sprauta nr. 9 sem boðið var upp frá miðjum október s.l. olli. Umframdauðsföllum á Íslandi fjölgaði mikið í kjölfar bólusetninganna og reyndust þau langhæstu í Evrópu í janúar.

Forstjori CDC 10 sprautan i haust


Aaron Siri um bóluefnið gegn hlaupabólu

Aaron Siri lögfræðingur fjallaði í pósti að baki greiðsluveggs um hlaupabólu bóluefnið en hann hefur sérhæft sig í álitaefnum tengdum skyldu til bólusetninga. Hann vann málið gegn FDA sem skyldaði stofnunina til að birta gögnin sem tengdust neyðarleyfisveitingu mRNA bóluefnis Pfizers á nokkrum mánuðum í stað 70 ára eins og FDA og Pfizer vildu.

Athygli vekur að sóttvarnayfirvöld á Íslandi telja ástæðu til að bólusetja 18 mánaða og 2,5 árs smábörn hér á landi gegn hlaupabólu þegar Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Frakkland, Portúgal, Belgía, Holland, Austurríki og Nýja Sjáland gera það ekki (2022). Í Ástralíu og Sviss er ekki ráðlagt að nota bóluefnið fyrr en við 10 ára aldur. En látum Aaron Siri hafa orðið:Screenshot 2024-04-01 at 04.15.41

Screenshot 2024-04-01 at 04.16.27

Screenshot 2024-04-01 at 04.17.10

Screenshot 2024-04-01 at 04.18.07


Bloggfærslur 2. apríl 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband