Leita í fréttum mbl.is

Krabbameinsveisla lyfjaframleiðenda

Af óútskýrðum ástæðum kemur krabbameinsvöxturinn um heim allan lyfjaframleiðendum ekki á óvart. Forstjóri Pfizer, Albert Bourla, telur að einn af hverjum þremur muni fá krabbamein. Svo öruggur er hann með þessa framtíðarsýn að hann hefur fjárfest í fyrirtækjum í krabbameinslyfjaframleiðslu á háum verðum á síðustu mánuðum og misserum. Ekki er ástæða til að draga framtíðarsýn forstjórans í efa. Hann sá jú covid fyrir eins og Bill Gates.

Hér á landi sýndi dánarmeinaskrá landlæknis fyrir árið 2022 skelfilega þróun. Dauðsföllum af völdum illkynja æxla fjölgaði um 9% á árinu 2022. Illkynja æxli í blöðruhálskirtli dró 21% fleiri til dauða en á fyrra ári, eitilæxli 17%, mergæxli 40%, æxli í brisi 23% og dauðsföllum af völdum hvítblæðis fjölgaði um 33% frá fyrra ári.

Að neðan fylgja nokkrar klippur úr tölvupósti William Makis læknis.Makis cc 1

Makis cc 2


Fátt um svör

Á blaðmannafundi í Genf um mannréttindi og Covid-19 varpaði Christof Plothe forstöðumaður World Council for Health WCH fram 36 spurningum sem fylgja í klippum. Spurningum sem mörgum hverjum væri áhugavert að fá svör við frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum.

Talandi um upplýsingagjöf og svör íslenskra yfirvalda. Hér á Íslandi heyrist ekki orð frá heilbrigðisráðherra um skaðsemi covid mRNA bóluefnanna.Dvalardagar á bráðamóttöku 23 Ekki orð um mikla fjölgun dauðsfalla í beinu framhaldi af örvunarbólusetningum haustsins sem strax sá merki í mikilli fjölgun dvalardaga (24≥ klst.) á bráðamóttöku og fjölgun umframdauðsfalla. Engar skýringar eða viðbrögð við mánaðarlegum tíðindum af umframdauðsföllum á Íslandi sem eru þau mestu um gjörvalla Evrópu mánuð eftir mánuð. Ekki eitt orð um mikla fjölgun dauðsfalla milli áranna 2021 og 2022 af völdum illvígs krabbameins. Engar skýringar gefnar á skyndilegri afturvirkri fjölgun covid greininga hjá embætti landlæknis.WCH 1

WCH 2

 


Bloggfærslur 5. apríl 2024

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband