24.6.2024 | 20:29
Sjálfsvígstíðni íslenskra kvenna
Samkvæmt gagnagrunni OECD sem sýnir tíðni sjálfsvíga kvenna aðildarlanda samtakanna á árinu 2021 skipar Ísland sér í sjötta sæti landa með fjölda sjálfsvíga á hverjar 100.000 konur. Embætti landlæknis hlýtur að hafa framkvæmt greiningu á ástæðum þessa. Vonandi hafa verið gerðar ráðstafanir sem leiða til fækkunar sjálfsvíga meðal íslenskra kvenna. Ísland var í öðru sæti Norðurlandanna á árinu 2021 með fjölda sjálfsvíga kvenna.