12.3.2025 | 12:53
Læknarnir eiga að verða fyrri til
Heilsufari landsmanna hefur hrakað verulega á liðnum árum sem m.a. endurspeglast í mikilli fjölgun krabbameinssjúklinga. Lítið fer fyrir umræðu um ástæður þessarar miklu fjölgunar meinsemda. Kann það að skýrast af þöggun heilbrigðisyfirvalda um skaðann af völdum Covid bóluefnanna. Nýfallinn dómur Evrópudómstólsins í einkamáli gefur sterka vísbendingu um að skaðann af völdum bóluefnanna eigi að hengja um háls lækna. Læknarnir og stjórn fagfélags þeirra hljóta að fara að átta sig á að einungis er spurning um tíma þar til heilbrigðisyfirvöld komast ekki lengur hjá að rjúfa þagnarmúrinn um skaðsemi bóluefnanna. Til að fyrirbyggja að stjórnvöldum takist að gera lækna að blórabögglum í stöðunni eiga læknarnir sjálfir að verða fyrri til og opna umræðuna um skaðann af völdum bóluefnanna hér á landi og staðsetja ábyrgðina í almenningsálitinu þar sem hún með réttu á heima.
12.3.2025 | 06:57
30% fjölgun tilfella krabbameins í blöðruhálskirtli
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein karla og er um fjórðungur allra meina sem greinast hjá körlum á Íslandi samkvæmt heimasíðu Krabbameinsfélagsins. Uppsafnaður fimm ára fjöldi nýrra tilfella blöðruhálskirtilskrabbameins á árunum 2019 til 2023 er 30% fleiri en hvort heldur er borið saman við árin 2009 til 2013 eða 2014 til 2018. Ekki er að finna skýringar á þessari miklu fjölgun krabbameins hjá körlum á liðnum árum í opinberum gögnum heilbrigðisyfirvalda.