Leita í fréttum mbl.is

Það er ekkert grín að stíga á tær lyfjaframleiðenda

Nýlegar ákvarðanir Roberts F Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra valda titringi meðal stjórnenda lyfjaframleiðenda vestra enda vega þær að fjárhagslegri afkomu framleiðenda þar sem þær raska rótgrónu sjálfsafgreiðslukerfi þeirra hjá heilbrigðiskerfinu:

  1. RFK rifti $700 milljóna samningi ráðuneytisins við Moderna sem ætlað var að flýta fyrir ferli nýs mRNA fuglaflensubóluefnis á markað. Ástæðan sem ráðuneytið gaf fyrir samningsslitum eru í klippu og hljóma kunnuglega þeim sem hafa efasemdir um öryggi Covid mRNA bóluefnanna.
  2. RFK snéri við einhverri umdeildustu ákvörðun sóttvarnaeftirlitsins CDC að gera Covid bóluefnin að hluta barnabólusetningar áætlunarinnar.
  3. Í gær tilkynnti forstjóri lyfjaeftirlitsins FDA um rannsókn á Covid bóluefna skaðanum. Niðurstöður rannsóknar lyfjaeftirlitsins munu að líkindum koma til með að hafa mikil áhrif um heim allan og m.a. auðvelda sköðuðum og fjölskyldum látinna að leita réttar síns.
  4. RFK sagði öllu ráðgjafaráði (ACIP) sóttvarnarstofnunarinnar CDC upp störfum í gær. Taldi ráðherrann óviðunandi hvernig einstakir meðlimir ráðsins tengdust lyfjaframleiðendum og færu með augljósum hætti í einu og öllu að þeirra vilja í störfum sínum.
  5. Ef til vill er stærsta ákvörðunin tengd Covid bóluefnunum bréf FDA (bréfið má lesa á heimasíðu lyfjaeftirlitsins) til Pfizer og Moderna þar sem þeim er gert að uppfæra fylgiseðil Covid bóluefnanna með upplýsingum um hættuna á hjartabólgu í kjölfar bólusetninga. Í bréfinu til lyfjaframleiðendanna er vísað til fjölda langtíma rannsókna, þar á meðal einnar sem sýnir að af 331 fengu 278 hjartatengdar aukaverkanir í kjölfar Covid bólusetninga.

Hlutabréf Pfizer hafa lækkað um 9% og Moderna um 32% frá áramótum.Fuglaflensu samningi sagt upp


Eftirlitsaðilar bregðast trausti

Dánarlíkur Moderna tvíbólusettra 2021 á aldrinum 46 til 69 ára reyndust 50% hærri en þeirra sem fengu Pfizer. Því vekur furðu þegar eftirlitsaðilar veita nýju mRNA Covid bóluefni Moderna, mNEXSPIKE, markaðsleyfi á grundvelli klínískrar rannsóknar þar sem nýja efnið var borið saman við eldra efnið sem hafði reynst svo hættulegt að notkun þess var hætt víða. Meðal annars á Íslandi þar sem hætt var að nota efnið í febrúar 2022 þegar landsmenn höfðu þegið 98.450 sprautur af Moderna. Íslenskir eldri borgarar verða að vona að nýi landlæknirinn geri ríkari kröfur en eftirlitsaðilinn til öryggis bóluefnisins og afþakki kaup á efninu.Moderna Pfizer samanburdur danarlikur bolusettra 2021


Bloggfærslur 10. júní 2025

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband