11.6.2025 | 15:09
Loksins, loksins og þó fyrr hefði verið
Í viðtalinu í Reykjavík síðdegis, þar sem sóttvarnalæknir fór frjálslega með staðreyndir um aukaverkanir covid bóluefnanna, kom fram að heilbrigðisyfirvöld hefðu tekið þá ákvörðun að líklega yrði eldri borgurum ekki boðin covid bólusetning í haust eins og undanfarin ár. Átakanlegt var að hlýða á lækninn skýra þessa löngu tímabæru ákvörðun með fáum smitum þegar við blasir að ákvörðunin er tekin af ástæðum alvarlegra aukaverkana bóluefnisins sem m.a. endurspeglast í einhverju hæsta hlutfalli umframdauðsfalla meðal þjóða Evrópu ár eftir ár og heilsufarslegs skaða sem flestir landsmenn hafa orðið vitni að í eigin fjölskyldum eða meðal vina og samstarfsmanna.
11.6.2025 | 09:35
Útúrsnúningur og hálfsannleikur sem einhver myndi kalla lygi
Ömurlegt var að hlusta á Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni svara þáttastjórnanda á Bylgjunni með útúrsnúningi og hálfsannleik aðspurð um hvort hún taki undir með þeim sem telji ástæðu til að skoða skaðann af covid bólusetningunum. covid bóluefni hafa náttúrlega ekki verið notuð gríðarlega lengi. Þáttastjórnandi: Þau voru það á sínum tíma og það er farið fram á að þessi mál verði rannsökuð. Sóttvarnalæknir: Ég veit ekki sérstaklega um það, það er hægt að tilkynna allar aukaverkanir til Lyfjastofnunar sem heldur utan um það og almennt eru bara mjög fáar aukaverkanir, og alvarlegar aukaverkanir vegna bólusetninga hjá okkur. Árið 2023 voru bara tvær tilkynningar vegna almennra bólusetninga og ein alvarleg. Þetta er mjög sjaldgæft m.v. fjölda bólusetninga. Þetta svar gefur sóttvarnalæknir þáttastjórnanda í samtali um skaðann af covid bóluefnunum þrátt fyrir að vita að Evrópsku lyfjastofnuninni sem rekur gagnagrunninn EudraVigilance sem geymir tilkynningar um bóluefnaskaða á Evrópska efnahagssvæðinu hafa borist liðlega 6.400 tilkynningar um aukaverkanir frá Lyfjastofnun vegna Covid bóluefna á Íslandi. Þar af yfir 350 alvarlegar en skilgreiningin á alvarlegum aukaverkunum bóluefna eru t.d. bráðainnlögn á neyðarmóttöku, fæðingargalli eða dauðsfall.
11.6.2025 | 07:35
Flensusprautan hafði 27% öfuga virkni veturinn 2024 til 2025
Rannsókn á virkni inflúensubóluefnis síðasta vetrar meðal 53.402 starfsmanna Cleveland Clinic (klippa) þar sem 43.857 (82.1%) þáðu inflúensubólusetningu leiddi í ljós að 1.079 eða 2.02% fengu flensuna á rannsóknartímanum sem skilgreindur var 25 vikur (hálft ár) frá bólusetningu. Fjöldi uppsafnaðra flensutilvika var svipaður hjá báðum hópum, bólusettum sem óbólusettum í upphafi en eftir því sem leið á rannsóknartímann fjölgaði þeim sem fengu flensuna hraðar í hópi þeirra bólusettu en hinna óbólusettu. Reiknuð vörn bólusetningar gegn inflúensunni í vetur reyndist neikvæð um 26,9% meðal starfsmannanna.