14.6.2025 | 14:52
Hæsta umframdánartíðni í Evrópu þrjú ár samfellt
Að heilbrigðisráðherra njóti trausts í embætti vekur furðu ef horft er til árangurs ráðherrans í starfi landlæknis á liðnum árum þar sem Ísland er með hæsta aldursstaðlað hlutfall umframdauðsfalla í Evrópu á hverju ári síðustu þrjú árin.
Á efri myndinni má sjá röð þeirra 10 þjóða sem hæsta höfðu aldursstaðlaða umframdánartíðni í Evrópu 2024 og tölur þjóðanna fyrir árin 2022 og 2023. Ísland er með hæsta hlutfallið öll þrjú árin. Neðri myndin sýnir innbyrðis röð Norðurlandanna 2024 en hún hefur haldist óbreytt síðustu þrjú árin. Ísland á hverju ári með hæstu hlutfallslegu dánartíðnina og Svíþjóð með þá lægstu. Mortality Watch notar meðaltal áranna 2017 til 2019 við útreikninginn. Aldursstöðlun byggir á töflu WHO 2015.