17.6.2025 | 07:58
Vitsmunaleg hrörnun í boði yfirvalda
Niðurstöður Japanskrar rannsóknar, sem hafði að markmiði að kanna hvort gaddapróteinið (SARS-CoV-2 spike protein) fyndist í heilavef sjúklinga sem fengið höfðu heilablóðfall í kjölfar mRNA bólusetningar, leiddu í ljós tilvist próteinsins í innri heilaæðavegg 43,8% bólusettra sjúklinga allt að 17 mánuðum eftir bólusetningu. Niðurstöðurnar telja rannsakendur það alvarlegar að mikilvægt sé að staðfesta þær með alþjóðlegri rannsókn og ástæða sé til að endurmeta öryggi mRNA bóluefnanna. Þessar niðurstöður eru ekki þær fyrstu sem sýna að gaddaprótein bóluefnanna en ekki gaddaprótein covid sýkinga tengist alvarlegum heilatilvikum. Virkni próteinsins til örstorknunar kann að skýra aukningu vitsmunalegra vandamála í kjölfar fjöldabólusetninganna. Þetta eru ekki traustvekjandi tíðindi fyrir eldri borgara sem meta þurfa á hausti komandi árvisst kostaboð um örvunarbólusetningu. Bólusetningu með efni sem eykur líkur þess bólusetta á að veikjast af sjúkdómnum sem bóluefninu er ætlað að hindra og aukin heldur hefur reynst bólusettum heilsufarslega skaðlegt og í mörgum tilvikum lífshættulegt.