18.6.2025 | 08:26
Trefjakenndir strimlar í æðum
Samtök útfararstjóra í Tennessee ríki í Bandaríkjunum eru þau fyrstu sem staðfesta opinberlega tilvist hvítra trefjakenndra strimla í æðum látinna sem var óþekkt fyrirbæri fyrir 2021 eða áður en fjöldabólusetningarnar við Covid-19 hófust. Starfsemi á útfararstofum vestra er frábrugðin hérlendri þar sem í mörgum tilvikum þarf að flytja líkin til greftrunar um langan veg og því líkin tæmd vökva og í æðar sett rotvarnarefni (embalming). Ekki hefur verið upplýst hvort við krufningar mRNA Covid bólusettra hérlendis hafi greinst ljósir trefjakenndir strimlar í æðum. Strimlarnir greinast helst hjá 36 til 65 ára og eru algengastir 2 til 10 cm langir. Góðu fréttirnar fyrir okkur sem þáðum mRNA sprauturnar eru að heldur færri lík reynast með hvítu strimlana í æðum á þessu ári en en því síðasta.