19.6.2025 | 07:49
Gefum Ivermectin séns
Hversu margir Íslendingar eiga við heilsufarsleg vandamál að stríða í kjölfar Covid vegna bannsins á Ivermectin á fyrstu misserum sjúkdómsins? Hefur bannið á notkun Ivermectin orðið einhverjum Íslendingum að fjörtjóni? Hversu margir krabbameinssjúklingar fara í dag á mis við hugsanlegan lækningamátt Ivermectin vegna neikvæðrar afstöðu heilbrigðisyfirvalda til margreynds og þaulrannsakaðs lyfsins? Þessum spurningum hljóta heilbrigðisyfirvöld að svara nú þegar fyrir liggja sannanir um að útskúfunin á lyfinu Ivermectin byggði ekki á vísindalegum grunni. Umsögn Áströlsku læknasamtakanna (AMPS) um Ivermectin er gjörólík Lyfjastofnunar. Tölfræðin um rannsóknir á lyfinu taka af allan vafa um gagnsemi þess.