21.6.2025 | 02:50
44% fleiri misstu fóstrið á fyrstu 8 til 13 vikum meðgöngu
mRNA Covid bóluefnin voru ekki reynd á ófrískum í þeim takmörkuðu klínísku rannsóknum sem gerðar voru áður en efnin voru tekin í notkun. Sú staðreynd hafði ekki áhrif á ráðleggingu heilbrigðisyfirvalda sem hvöttu vanfærar til að þiggja bólusetningu. Athugun (óritrýnd) sem náði til 220.000 þungana á árunum 2016 til 2022 í Ísrael leiðir í ljós að af hverjum 100 sem þáðu mRNA bólusetningu komnar 8 til 13 vikur á leið misstu 13 fóstrið samanborið við 9 fósturlát sem gera má ráð fyrir á fyrsta þriðjungi meðgöngu.