22.6.2025 | 11:06
Hættulegra að verða gamall á Íslandi
Elstu borgurum Íslands virðist hættara við að mæta skapara sínum en á hinum Norðurlöndunum þegar tölur um dauðsföll 90 ára og eldri á fyrstu 14 vikum síðustu ára eru bornar saman. Engar upplýsingar eru að hafa um fjölda örvunarbólusetninga sem elsti aldurshópurinn hefur þegið á liðnum árum og því er ekki hægt að álykta að dugnaður íslenska heilbrigðisstarfsfólksins við að halda mRNA Covid bóluefnunum að grunlausum eldri borgurum hjúkrunarheimilanna eigi þátt í hvernig komið er. Þróunin léttir nýstofnaðri ráðherranefnd vinnuna við að leita lausna á viðvarandi skorti á hjúkrunarrýmum.