4.6.2025 | 10:43
Landlæknir kveikti ekki á perunni
Efri myndin sýnir tilkynningar inn í gagnagrunn Vestur-Ástralíu um bóluefnaskaða og birtist með áskorun í blaðagrein til landlæknis í maí 2023 um stöðvun bólusetninga. Svo augljóslega staðfestir myndin bóluefnaskaðann að jafnvel var hægt að ætlast til að núverandi heilbrigðisráðherra og þáverandi landlæknir myndi kveikja á perunni og hætti að halda örvunarbóluefninu að eldri borgurum. Því miður bar henni ekki gæfa til þess. Neðri myndin er úr gagnagrunni Mortality Watch og sýnir dapra stöðu Íslands í Evrópu ár eftir ár þegar löndunum er raðað samkvæmt aldursleiðréttri umframdánartíðni. Gagnabanki WHO upplýsir að Ísland er fjórða örvunarbólusettasta þjóð heimsins og í efsta sæti Evrópuþjóða.