5.6.2025 | 09:19
VAERS með 34 íslensk dauðsföll 2021 og 2022
VAERS (Vaccine Adverse Event Reporting System) gagnagrunnurinn í USA, í umsjón CDC sóttvarnastofnunarinnar og FDA lyfjastofnunarinnar, tekur við tilkynningum um aukaverkanir í kjölfar bólusetninga. Í VAERS eru 1.177 tilkynningar um skaða af völdum covid bóluefna á Íslandi. Meðal tilkynninga eru 19 um varanlega örorku í kjölfar bólusetninga, 16 um fæðingargalla og 34 tilkynningar um dauðsföll. Þar af eru 31 dauðsfall 2021 og 3 dauðsföll 2022.
Athygli vekja tilkynningar um 34 íslensk dauðsföll af völdum Covid bóluefna sem ekki eru skráð sem slík í dánarmeinaskrá landlæknis fyrir árin 2021 og 2022.
Þar sem tilkynningar í VAERS eru valfrjálsar öðrum en heilbrigðisstarfsmönnum og starfsmönnum lyfjaframleiðenda vegna tiltekinna tegunda aukaverkana er varfærnislega talið að margfalda megi fjölda vægra aukaverkana með 10 og alvarlegar aukaverkanir með 2 til 5 til til að nálgast raunverulegan fjölda aukaverkana af völdum bóluefna. Tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir eins og dauðsföll eru studdar dánarvottorðum.
Tölurnar um íslenska bóluefnaskaðann eru á síðunni www.VaersAware.com sem hefur sérhæft sig í vinnslu upplýsinga úr VAERS. Að kröfu Evrópskra eftirlitsaðilans hafa tilteknar upplýsingar í VAERS eins og upprunaland tilkynninga verið gerðar almenningi óaðgengilegar. Það kann að skýra hvers vegna ekki eru finnanlegar upplýsingar um íslenskar aukaverkanir bóluefna í VAERS eftir 2022.
EMA (Evrópska lyfjastofnunin) rekur EudraVigilance sem geymir tilkynningar um bóluefnaskaða á Evrópska efnahagssvæðinu. Í grunninum eru liðlega 6.400 skaðatilkynningar vegna Covid bóluefna á Íslandi. Þar af vegna bóluefna Pfizer 2.910, Jansen 1.460, AstraZenica 1.200 og Moderna 870.