13.7.2025 | 10:46
Að endurheimta trúverðugleikann
Dr. Aseem Malhotra hjartalæknir, nýráðinn yfirlæknir heilsuátaks forsetans í USA og sem hefur miðlað af reynslu sinni af Covid bóluefnunum á ráðstefnu hérlendis, er í helgarviðtali í The Telegraph. Í vikunni birti hann ræðu sem hann flutti við móttöku Global Health Award 2025 viðurkenningarinnar. Þar greindi hann frá ánægju sinni af að frétta af takmarkaðri trú starfsmanna bresku heilbrigðisþjónustunnar á gagnsemi Covid bóluefnanna þar sem einungis 15% þáðu síðustu örvunarsprautuna. Malhotra hjartalæknir er í hópi þúsunda sérfræðinga á heilbrigðissviði sem kalla eftir stöðvun á notkun mRNA Covid bóluefnanna. Telja þeir áhættuna af notkun bóluefnanna á heilsu þess bólusetta verulega umfram hugsanlegan ávinning. Viðtalið í Telegraph er að baki greiðsluveggs. Að neðan er klippa með fyrirsögn og hlekkur á bloggið hans.