Á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs leituðu fimm sinnum fleiri hælis á Íslandi pr. 100.000 íbúa en í Noregi eða Svíþjóð og níu sinnum fleiri á Íslandi en í Danmörku eða Finnlandi. 69% fleiri leituðu hælis á Íslandi en í löndum Evrópusambandsins á fyrsta ársfjórðungi. Ljóst er að fjölskyldur sem hyggjast leita hælis í Evrópu telja líkurnar á jákvæðri afgreiðslu hælisumsóknar á Íslandi það miklar að réttlæti fjárútlátin sem fylgja kaupum á farmiðum með flugi frá meginlandinu.