27.7.2025 | 10:16
Davíð Oddsson kallar eftir afsökunarbeiðni Bjarna Ben
Ritstjóri Morgunblaðsins fjallar í Reykjavíkurbréfi um innflytjendamál og að núverandi ríkisstjórn telur mikilvægast að skipta um þjóð í landinu og að það verði gert, án þess að eiga um það neinar umræður við þjóðina, sem fyrir er í landinu. Og áfram; Við erum þó ekki alveg ein um það, að hafa komið okkur upp nærri óvinnanlegum vanda, og það án þess að nokkur vitræn umræða hafi átt sér stað, svo að nema megi, hver sé hinn raunverulegi vilji þjóðarinnar! Nú er eiginlega óhjákvæmilegt að halda um stund til Þýskalands, enda hefur sú, sem var um alllangan tíma einn aðalleikarinn í þessum hættulega og raunar misheppnaða leik, nú síðast stigið óvænt fram og lýst því yfir, að flóttamannamálin hafi verið sín verstu mistök sem kanslari og vísar þar til Angelu D. Merkel sem hefur nú loksins beðið þjóð sína afsökunar á þessum miklu mistökum sínum, en mesta skemmdarverkið í þessu skaðlega máli hefði verið, að sögn kanslarans sjálfs, að þetta stórbrotna mál hefði verið gert án þess að leita fyrst eftir því, hver væri vilji þýsku þjóðarinnar í þessu máli. Það er talið vafalaust að þá hefði algjör og afgerandi meirihluti viljað stöðva þetta ólánsmál.
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér telur ritstjóri Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins fulla ástæðu vera fyrir fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, fyrrverandi formann Vinstri grænna, Katrínu Jakobsdóttur og núverandi formann Framsóknarflokksins Sigurð Inga Jóhannsson að biðja þjóðina afsökunar á að hafa ekki leitað fyrst eftir hver væri vilji hennar í þessu máli. Málefni innflytjenda hafa þróast á Íslandi með hliðstæðum hætti á síðustu 10 árum og bæði í Þýskalandi og Svíþjóð. Verði löggjöf og reglum ekki breytt líkt og Danir hafa gert raungerist spá ritstjórans um að skipt verði um þjóð í landinu. Neðri myndin sýnir hvernig þjóðarskiptin í landinu raungerast verði ekki snarlega gripið í taumana samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar sem gerir ráð fyrir að landsmenn af innlendu bergi brotnir verði orðnir í minnihluta á Íslandi innan 20 ára.