16.2.2024 | 07:46
Hvað ætli hanskaklædd lagaumgjörð kosti í Frakklandi?
Vonandi verður ný frönsk löggjöf sem er sérhönnuð að hagsmunum lyfjaframleiðenda og gerir gagnrýni á mRNA lyfin saknæm með allt að 3 ára fangelsi og 45.000 sekt ekki tekin upp í löggjöf ESB og í framhaldinu innleidd hérlendis.
Fastlega má gera ráð fyrir að einn af mörgum fjárhagslegum undirliggjandi þáttum sem liðkuðu fyrir lagasetningunni hafi verið endurskoðun á ógreiddum skuldbindinum Frakklands vegna kaupa á mRNA bóluefnum sem landsmenn þar líkt og annars staðar í álfunni hafa afþakkað. Miklu magni bóluefna hefur verið fargað en ógreiddar skuldbindingar sem nýlega var endursamið um standa eftir. Spurst hefur að þjóðirnar hafi fengið afslætti af ógreiddum reikningum með því að greiða fyrir óafhent óframleidd bóluefni. Pólland hefur ákveðið að spyrna við fótum og neitar að greiða Pfizer fyrir bóluefnin en lyfjaframleiðandinn hefur höfðað innheimtumál á hendur landinu.
Ekki hefur fengist upplýst hverjar skuldbindingar Íslands eru um kaup á bóluefnum sem nánast er hætt að nota þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Kvörtun hefur verið send Umboðsmanni alþingis vegna þessa.