28.2.2024 | 11:13
Guðjón Þórðarson greindist með Parkinson
Bólusetningarstaða Guðjóns Þórðarsonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara, gegn covid kemur ekki fram í fréttinni. En það er örugglega fyrirhafnarinnar virði fyrir þá sem greinst hafa með parkinson og aðra alvarlega kvilla eftir að hafa þegið mRNA bólusetningu að afeitra sig af gaddaprótíninu (e. Spike protein) í samráði við lækni. Umframdauðsföllin sem landsmenn hafa horft upp á eru því miður einungis toppur ísjakans þegar skaði covid mRNA bóluefnanna er annars vegar. Átakanlegt hefur verið að fylgjast með frásögnum af fjölgun greininga á parkinsonsjúkdómnum. Heilasjúkdómarnir alzheimer og parkinson deila meinleiðum með príonsjúkdómum eins og Creutzfeld-Jakob Disease (CJD). Niðurstöður rannsókna hafa sýnt hvernig covid-mRNA-efnin geta valdið príonsjúkdómum. CJD stafar af því þegar venjuleg príonprótein, sem finnast á yfirborði margra frumna, verða óeðlileg og klessast í heilanum, sem veldur heilaskaða. Þessi óeðlilega uppsöfnun skemmdra prótína í heilanum getur valdið minnisskerðingu, persónuleikabreytingum og hreyfierfiðleikum.
Guðjón greindist með parkinsonssjúkdóminn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |