23.3.2024 | 08:12
Afturvirk hagræðing talna
Landsmenn eru furðu lostnir eftir að hafa séð hvernig embætti landlæknis hefur hagrætt vikulegum tölum um fjölda covid greindra með afturvirkum hætti. Engum dylst að blekkt er af ásetningi.
Að Landlæknisembættið verði uppvíst að slíkum gjörningi er þeim mun alvarlegra þar sem stofnunin er viðurkenndur opinber hagskýrsluframleiðandi sem framleiðir opinbera tölfræði á sviði lýðheilsu og heilbrigðisþjónustu svo notað sé orðalag úr fréttatilkynningu Hagstofunnar og Landlæknisembættisins frá 24. mars 2023. Í fréttatilkynningunni er greint frá samkomulagi stofnananna og að Hagstofan muni styðja við framleiðsluna þannig að hún uppfylli meginreglur í evrópskri hagskýrslugerð. Markmið samstarfsins er að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og miðla hagtölum sem byggja á umræddum skuldbindingum með viðeigandi hætti til notenda.