5.4.2024 | 04:33
Fátt um svör
Á blaðmannafundi í Genf um mannréttindi og Covid-19 varpaði Christof Plothe forstöðumaður World Council for Health WCH fram 36 spurningum sem fylgja í klippum. Spurningum sem mörgum hverjum væri áhugavert að fá svör við frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum.
Talandi um upplýsingagjöf og svör íslenskra yfirvalda. Hér á Íslandi heyrist ekki orð frá heilbrigðisráðherra um skaðsemi covid mRNA bóluefnanna. Ekki orð um mikla fjölgun dauðsfalla í beinu framhaldi af örvunarbólusetningum haustsins sem strax sá merki í mikilli fjölgun dvalardaga (24≥ klst.) á bráðamóttöku og fjölgun umframdauðsfalla. Engar skýringar eða viðbrögð við mánaðarlegum tíðindum af umframdauðsföllum á Íslandi sem eru þau mestu um gjörvalla Evrópu mánuð eftir mánuð. Ekki eitt orð um mikla fjölgun dauðsfalla milli áranna 2021 og 2022 af völdum illvígs krabbameins. Engar skýringar gefnar á skyndilegri afturvirkri fjölgun covid greininga hjá embætti landlæknis.