26.4.2024 | 10:18
Japanar rekja umframdauðsföllin til bóluefnanna
Japanskir vísindamenn hafa fundið tengsl á milli bólusetninga og 6 tegunda krabbameins í stærstu rannsókn til þessa á skaða af völdum covid mRNA bóluefnanna. Gagnagrunnur með öllum 123 milljónum Japana lá undir í rannsókninni en Japanir eru bólusettasta þjóð heimsins.
Krabbameinin eru í eggjastokkum, munnholi (vörum, munnholi og barka) blöðruhálskirtli, brisi, brjóstum auk hvítblæðis. Þessar tegundir krabbameins eru öll þekkt sem estrógenviðtaka alfa (ERα)-næm krabbamein.
Rannsóknin tekur af vafa um að umframdauðsföllin í Japan megi rekja til skaða af völdum bóluefnanna en ekki til vírusins.
Niðurstöður rannsókna japönsku vísindamannanna marka tímamót. En Íslendingum ætti ekki að koma niðurstöður vísindamannanna á óvart. Hérlendis staðfesti embætti landlæknis hliðstæðar niðurstöður og Japanar hafa nú fundið með útgáfu dánarmeinaskrár fyrir árið 2022. Dauðsföllum af völdum illkynja æxla á Íslandi fjölgaði um 9% á árinu 2022. Illkynja æxli í blöðruhálskirtli dró 21% fleiri til dauða en á fyrra ári, eitilæxli 17%, mergæxli 40%, æxli í brisi 23% og dauðsföllum af völdum hvítblæðis fjölgaði um 33% frá fyrra ári.