18.6.2024 | 17:01
Tíđni vćgrar vitsmunaröskunar vex međal bólusettra
Ekki sér fyrir endann á umfangi skađans af völdum mRNA efnanna og fáar vikur líđa án ţess ađ fréttir eđa niđurstöđur rannsókna komi fyrir augu almennings sem varpa birtu á afleiđingar notkunar allt ađ ţví óreyndra efnanna. Dr. Hiroto Komano, ţekktur taugavísindamađur og prófessor viđ Iwate lćknaháskólann í Japan hefur deilt áhyggjum sínum af fjölgun greininga einstaklinga međ vćg elliglöp í kjölfar covid mRNA bólusetninga.
Japanski prófessorinn vísar til rannsóknar frá Suđur Kóreu hverra niđurstöđur voru birtar 28. maí s.l. í International Journal of Medicine. Rannsóknin er athygliverđ fyrir ţćr sakir ađ ţar er heilsa 558.017 einstaklinga sem ţáđu tvćr Covid-19 mRNA bólusetningar borin saman viđ heilsufar 38.687 einstaklinga sem ekki voru bólusettir. Ţetta er einhver stćrsta rannsókn sinnar tegundar og ţví vel marktćk.
Međal niđurstađna er ađ fjöldi einstaklinga sem greindust međ vćg einkenni vitsmunaröskunar (MCI mild cognative impairment) voru tvöfalt fleiri hlutfallslega hjá ţeim bólusettu í samanburđi viđ ţá óbólusettu. Jafnframt kom fram í rannsókninni ađ innan ţriggja mánađa frá bólusetningu hafđi fjöldi ţeirra sem greindust međ MCI og Alzheimer sjúkdóminn fjölgađ um 20% í bólusetta hópnum umfram ţann óbólusetta.