Leita í fréttum mbl.is

Falleinkunn

Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur fjallað í skýrslu um árangursrýrar sóttvarnaaðgerðir á Íslandi á tímum Covid. Skýrslan greindi frá 11,5% fjölgun dauðsfalla á Íslandi á árinu 2022 sem var mesta hækkun í Evrópu. Ennfremur kom fram í skýrslunni að fjölgun dauðsfalla á Íslandi varð mest meðal 44 ára og yngri meðan fjölgun dauðsfalla annarra þjóða varð mest í elsta aldurshópnum. Einungis Pólland reyndist með hærra dánarhlutfall en Ísland í yngsta aldurshópnum.

Aðra mælingu á slökum sóttvarnaárangri Íslands má sjá í línuritinu sem sýnir þróun tíðni ungbarnadauða á Norðurlöndunum á árunum 2018 til 2022. Hvernig tíðni dauðsfalla íslenskra ungbarna tekur stökk 2020 og 2021 í samanburði við Norðurlöndin kallar á skýringar. Mikilvægt er að læra af reynslunni til að þessi slaka frammistaða íslenskra heilbrigðisyfirvalda við sóttvarnir í samanburði við nágrannaþjóðirnar endurtaki sig ekki í næsta faraldri. Faraldurinn er handan við hornið ef marka má fyrrverandi forstjóra CDC Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, sjá klippu.

Ungbarnadauði norðurlond linuritFormer CDC director predicts


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband