10.2.2025 | 11:32
Hver hefði trúað fráleitustu samsæriskenningu síðustu ára?
Við athugun Department of Government Efficiency (DOGE) undir stjórn Elon Musk fyrir hönd forseta USA á fjármálum USAID (stofnun sem heldur utan um „þróunaraðstoð“ Bandaríkjanna) kom í ljós að stofnunin fjármagnaði með tugmilljónum dollara af skattfé bandarísks almennings tilraunir með SARS-CoV-2 veiruna á Wuhan Institute of Virology (WIV) í Kína. Það er eflingu veirunnar sem veldur Covid-19 og kostað hefur milljónir jarðarbúa lífið. Af þessu tilefni rifjast upp ársgamalt viðtal við Chao Shan, sem var háttsettur vísindamaður á sviði lífefnavopna við tilraunastofuna í Wuhan, þar sem fram kom að bandarískum styrkveitingum fylgdu fyrirmæli um gerð veiru sem nota mætti til fólksfækkunar. Dr. Anthony Fauci, fyrrverandi forstjóri National Institute of Allergy and Infectious Diseases (NIAID) fjármagnaði rannsóknarstofuna í Wuhan. Ljóst er hvers vegna Biden fráfarandi forseti Bandaríkjanna lét það verða eitt af sínum síðustu embættisverkum að náða Fauci „fyrirfram“ vegna lögbrota sem hann kynni að sæta ákæru og verða sakfelldur fyrir. Leita þarf hálfa öld aftur í tímann til að finna hliðstæðu náðunar Biden´s á Fauci þegar Gerald Ford forseti náðaði Richard Nixon fyrrverandi forseta vegna afbrota sem hann kynni að verða dæmdur fyrir en afsögn Nixons var tilkomin vegna innbrots pólitískra samherja forsetans á skrifstofu demókrata í Watergate byggingunni í Washington.
Bill Gates, stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims, hefur verið talinn meðal slyngustu fjárfesta þegar hann fjárfesti í BioNTech framleiðanda mRNA Pfizer bóluefnisins nokkrum vikum fyrir Covid-19. Síðar seldi hann hlutabréfin með $242m hagnaði. Nú þegar fyrir liggur að tilurð veirunnar sem olli Covid var fjármögnuð af bandarísku skattfé og samkvæmt frásögn háttsetts starfsmanns rannsóknarstofunnar í Wuhan sleppt viljandi á heimsleikum hermanna sem fram fóru í Kína haustið 2019 skoðast frábær tímasetning fjárfestingar Gates í lyfjaframleiðandanum í nýju ljósi. Kröfur um rannsókn á Bill Gates, sem er meðal stærstu eigenda WHO, og Dr. Anthony Fauci stigmagnast dag frá degi og kann náðun Bidens á Fauci ekki að gagnast honum til að komast hjá fangelsisvist þegar upp verður staðið. Tugir lögmanna vinna nú baki brotnu víða um Bandaríkin við að finna veikan hlekk í náðun fyrrverandi forseta á Fauci.