14.5.2025 | 08:20
Engu er líkara en að menntun íslensku læknanna hafi dregist aftur úr
Óbreytt dánartíðni á Íslandi á árinu 2024 á sama tíma og hún lækkar meðal nágrannaþjóðanna gefur ekki vonir um að staða landsins í samanburði þjóða hafi batnað frá 2023 en það ár var Ísland með hæst aldurstaðlað hlutfall umframdauðsfalla meðal Evrópuþjóða. Tölur Hagstofunnar um dauðsföll á fyrsta fjórðungi yfirstandandi árs benda til lítt breyttrar dánartíðni á árinu 2025. Það er skelfilegt fyrir landsmenn að Ísland sé í hópi þeirra þjóða Evrópu sem hæst hlutfall umframdauðsfalla hafa samfellt um fjögurra ára skeið án þess að raunhæf von sé um breytingu til batnaðar.