11.6.2025 | 09:35
Útúrsnúningur og hálfsannleikur sem einhver myndi kalla lygi
Ömurlegt var að hlusta á Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni svara þáttastjórnanda á Bylgjunni með útúrsnúningi og hálfsannleik aðspurð um hvort hún taki undir með þeim sem telji ástæðu til að skoða skaðann af covid bólusetningunum. covid bóluefni hafa náttúrlega ekki verið notuð gríðarlega lengi. Þáttastjórnandi: Þau voru það á sínum tíma og það er farið fram á að þessi mál verði rannsökuð. Sóttvarnalæknir: Ég veit ekki sérstaklega um það, það er hægt að tilkynna allar aukaverkanir til Lyfjastofnunar sem heldur utan um það og almennt eru bara mjög fáar aukaverkanir, og alvarlegar aukaverkanir vegna bólusetninga hjá okkur. Árið 2023 voru bara tvær tilkynningar vegna almennra bólusetninga og ein alvarleg. Þetta er mjög sjaldgæft m.v. fjölda bólusetninga. Þetta svar gefur sóttvarnalæknir þáttastjórnanda í samtali um skaðann af covid bóluefnunum þrátt fyrir að vita að Evrópsku lyfjastofnuninni sem rekur gagnagrunninn EudraVigilance sem geymir tilkynningar um bóluefnaskaða á Evrópska efnahagssvæðinu hafa borist liðlega 6.400 tilkynningar um aukaverkanir frá Lyfjastofnun vegna Covid bóluefna á Íslandi. Þar af yfir 350 alvarlegar en skilgreiningin á alvarlegum aukaverkunum bóluefna eru t.d. bráðainnlögn á neyðarmóttöku, fæðingargalli eða dauðsfall.