Leita í fréttum mbl.is

Tjáningarfrelsi getur ekki kostað lækni starfsleyfið

Heilbrigðisyfirvöld átta sig á að tími uppgjörs á skaðanum sem mRNA Covid bóluefnin hafi valdið heilsu landsmanna nálgast óðfluga. Að heilbrigðisráðherra ásamt landlækni séu að fara á taugum má merkja af tilefnislausri og óverjandi ákvörðun landlæknis að svipta Guðmund Karl Snæbjörnsson lækni starfsleyfi til að sinna hópi sjúklinga sem margir hverjir eiga um sárt að binda vegna aukaverkana Covid bóluefnanna. Aðför heilbrigðisyfirvalda að Guðmundi Karli hefur staðið árum saman enda einna fyrstur til að átta sig á lækningamætti lyfsins Ivermectin við sjúkdómnum. Vitað er að mRNA bóluefnin hefðu ekki fengið neyðarleyfið 2020 hefði virkni Ivermectin við SARS-CoV-2 veirunni verið viðurkennd og því lögðu lyfjaframleiðendur og lyfjaeftirlitsaðilar allt undir til að gera Ivermectin tortryggilegt. Meðfylgjandi klippa er úr grein sem Helgi Örn Viggósson hugbúnaðarsérfræðingur skrifaði í apríl 2024 í tilefni af þeirri ákvörðun lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) að semja utan réttar eftir að ljóst var að stofnunin yrði dæmd fyrir alvarlega glæpi með því að eyða hundruðum milljóna af skattpeningum í áróðursherferð gegn lyfinu ivermektín, „sem urmull rannsókna sýndu að virkaði best allra lyfja gegn kóvid, auk þess að hafa áratuga reynslu sem eitt allra öruggasta lyfið á markaðnum.“HÖV um GKS og Ivermectin


« Síðasta færsla

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband