23.6.2025 | 09:31
177 Íslendingar hefðu enn verið ofanjarðar í árslok 2024
Íslendingum er hættara við að hverfa yfir móðuna miklu en frændum okkar á Norðurlöndum séu dánartölur þjóðanna 2024 bornar saman. Þannig hefðu 101 færri Íslendingar verið bornir til grafar á árinu 2024 miðað við Dani, 132 borið saman við Svía og 177 Íslendingar hefðu verið ofanjarðar í árslok 2024 í samanburði við Finna. En og aftur kemur í ljós hversu hæpin sú ráðstöfun var að gera landlækni síðustu ára að heilbrigðisráðherra. Þar með hvarf hvatinn sem ný aðkoma að heilbrigðisráðuneytinu hefði tryggt til að endurmeta ráðstafanir liðinni ára svo læra megi af mistökunum. Athygli vekur þögn samtaka lækna um áberandi lakari árangur á sviði heilbrigðisþjónustunnar hér á landi borðið saman við þjóðirnar á meginlandinu. Getur hugsast að menntun íslenskra lækna standist ekki lengur samanburð við menntun erlendra lækna? Hagsmunasamtök lækna geta ekki lengur skotið sér undan umræðunni um hvernig á því stendur að dánartíðni á Íslandi er með því hæsta sem þekkist meðal Evrópuþjóða þriðja árið í röð. Ætla þeir virkilega að sitja uppi með Svarta-Pétur fyrrv. landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra?