30.6.2025 | 08:02
Áfellisdómur OECD
Að farið hafi verið fullgeyst í málefnum innflytjenda á síðustu 10 árum sést af hækkuðu hlutfalli landsmanna fæddra erlendis sem hefur vaxið meira en tvöfalt hraðar á Íslandi en bæði í Danmörku og Svíþjóð. Stjórnlaus fjölgunin á þátt í hnignun íslenska menntakerfisins með lakari grunnfærni nemenda og skýrir hvers vegna Ísland stendur sig áberandi verr en önnur lönd í að mennta börn sem hafa annað móðurmál en þjóðtunguna samkvæmt úttekt Efnahags- og framfarastofnunar (OECD). Um útlendingalöggjöfina þarf að ríkja sem víðtækust sátt en stjórnmálaflokkurinn sem málaflokkurinn heyrir undir gegnir lykilhlutverki um mótun stefnunnar. Rétt er að halda til haga að málaflokkur innflytjenda laut samfelldri stjórn Sjálfstæðisflokksins frá 23. maí 2013 til 21. desember 2024 þegar horft er til áfellisdóms OECD ásamt falleinkunn fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins sem hún gefur menntakerfinu í grein í Morgunblaðinu 29.6. s.l.