6.7.2025 | 12:36
Heilbrigðis- og öldrunarmálin ein rjúkandi rúst
Samanburður á nýgengi krabbameins í aldurshópnum 65 til 79 ára sýnir sérstöðu Íslands meðal frændþjóðanna á Norðurlöndum með 3% fjölgun nýrra tilfella krabbameins á milli áranna 2021 og 2023. Hjá Finnum stendur fjöldi nýrra greininga í stað en hjá Svíum fækkar aldursstöðluðum greiningum um 1,6%, Norðmönnum um 2,2% og Dönum um 2,4%.
Ísland var með hæstu aldursstöðluðu umframdánartíðni 30 Evrópulanda bæði 2023 og 2024 og með aðra hæstu umframdánartíðnina í álfunni 2022. Á árinu 2024 reyndist umframdánartíðnin lægri hjá 25 þjóðum en á viðmiðunarárunum 2017 til 2019, hún stóð í stað hjá tveimur þjóðum en er hærri hjá einungis þremur þjóðum og mest á Íslandi.
Úrræðaleysi og kerfisleg lausatök er einkunn ríkisendurskoðanda vegna mönnunar- og flæðisvanda Landspítalans í stjórnsýsluúttekt sem sýnir að 10% stöðugilda spítalans eru ómönnuð. Að biðlistar eftir hjúkrunarrýmum hafi lengst jafn mikið og raun ber vitni er órækur vitnisburður arfaslakrar stjórnunar því ekkert er jafn fyrirsjáanlegt í þessu lífi og öldrun þjóðarinnar og vaxandi árviss þörf eftir nýjum hjúkrunarrýmum.