Leita í fréttum mbl.is

Bólusetningar og umframdauðsföll

Myndin sýnir uppsafnaðar stærðir umframdauðsfalla á Íslandi frá byrjun 2020 og uppsafnaðan fjölda bólusetninga frá áramótum 20/21 til loka árs 2022. Það var 11.3.2020 sem WHO gaf út yfirlýsingu þess efni að Covid-19 væri heimsfaraldur. Á vinstri ás (rauð lína) eru uppsöfnuð prósenta umframdauðsfalla og á hægri ásnum (blá lína) er uppsafnaður fjöldi bólusetninga. Bláa línan byrjar við áramót 20/21 þegar bólusetningar hófust eða 9 mánuðum eftir að faraldrinum var lýst yfir. Til þess tíma að bólusetningar hófust voru umframdauðsföllin tiltölulega fá en fáum vikum eftir að fjöldabólusetningar hófust taka dauðsföllin að hlaðast upp. Horfandi á línuritið blasir við að fullyrðingin um að bóluefnin hafi bjargað lífi milljóna er vægt sagt ósannfærandi. Rannsóknir staðfesta hið gagnstæða. Hér er hlekkur á niðurstöður stærstu rannsóknarinnar sem er frá júlí 2024 og náði til 2,7 milljarða einstaklinga, eða 35% mannkyns í 125 löndum. Niðurstöðurnar sýna fylgni bólusetninga og umframdauðsfalla og leiðir líkur að 16,9 milljón dauðsföllum á heimsvísu sem rekja má til bóluefnanna á þriggja ára tímabilinu 2020 til 2022.Uppsöfnuð umframd og bólus 20 til 22


« Síðasta færsla

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband