Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024
31.5.2024 | 16:59
Árviss fjölgun einhverfra tekur enda
Í ársskýrslu Tryggingastofnunar ríkisins eru ekki einungis neikvæðar fréttir af þróun heilsu landsmanna. Í klippunni má sjá á að árinu 2023 hefur árviss fjölgun einhverfra barna stöðvast. Hver getur verið skýringin á að þróun sem hefur varað í áratugi hægir á sér og vonandi stöðvast? Getur verið að skýringarinnar sé að leita í hlutfallslega færri barnabólusetningum á fyrstu misserum covid faraldursins? Stöðug fjölgun einhverfra um áratuga skeið hefur ekki verið skýrð með trúverðugum hætti. Fjölgun einhverfra, sem líkist einna helst faraldri, er með ólíkindum þegar horft er til þess að á Íslandi höfðu innan við 100 einstaklingar greinst með einhverfu skömmu fyrir aldamót.
31.5.2024 | 06:46
Geðheilsu landsmanna hrakar hratt frá 2014
Að fjöldi landsmanna með geðröskun hafi þrefaldast frá 2014 er með ólíkindum. Klippan úr ársskýrslu Tryggingastofnunar ríkisins fyrir árið 2023 ber með sér að einstaklingum sem þiggja endurhæfingarlífeyri hjá stofnuninni vegna geðraskana tekur að fjölga 2014 umfram mannfjöldaþróun og úr takti við aðrar sjúkdómsástæður sem liggja til grundvallar endurhæfingarlífeyri frá stofnuninni.
Breyting á reglum TR 2013/2014 kann að skýra þróunina. Ljóst er að óbreyttu stefnir í að nokkuð stór hluti þjóðarinnar verði kominn á endurhæfingarlífeyri vegna geðraskana hjá TR áður en núverandi áratugur hefur runnið sitt skeið.
Útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins vegna endurhæfingarlífeyris hækkuðu úr tæpum 12 milljörðum í tæpa 15 milljarða á milli áranna 2022 og 2023 eða um liðlega 25%. Athygliverð þróun að covid faraldri afstöðnum. Einstaklingum sem þáðu endurhæfingarlífeyri í desember frá TR fjölgaði um 11% á milli áranna 2022 og 2023. Fjöldatölur í endurhæfingu miðast við talningu í desember hvert ár þar sem endurhæfing getur varað frá 1 mánuði og upp í eitt ár innan ársins.
27.5.2024 | 17:16
Tvöföldun sjúkradagpeninga frá 2021
Heildargreiðslur Eflingar stéttarfélags á sjúkradagpeningum hækkuðu um 31,8% á síðasta ári og námu 1.592,5 millj. Þar með hafa útgjöld Eflingar vegna sjúkradagpeninga hækkað um 93% frá árinu 2020 en félagsmönnum fjölgað um 7% á sama tíma. Í ársskýrslum stéttarfélagsins er ekki greint frá ástæðum vaxandi veikinda félagsmanna að covid faraldri afstöðnum.
26.5.2024 | 12:07
Fækkun fæðinga víða um lönd
Elstu menn rekur ekki minni til þess að Hagstofu Íslands hafi ekki tekist að birta upplýsingar um fæðingar á fyrra ári þegar komið er fram í maí en sú er raunin þetta árið. Víða um lönd veldur fækkun fæðinga á liðnum misserum miklum áhyggjum. Í klippunni er umfjöllun frá Chile og Finnlandi. Furðu vekur að á heimasíðu landlæknis eru ekki nýrri tölur um fæðingar en frá árinu 2021.
Áður hefur á þessum vettvangi verið vakin athygli á hvernig upplýsingagjöf Hagstofu Íslands hefur hrakað á síðustu misserum en í stjórnarráðinu heyrir stofnunin undir forsætisráðuneytið. Af óútskýrðum ástæðum hrakaði upplýsingagjöf Hagstofunnar undir efnisflokknum mannfjöldi eftir að samstarfssamningur hennar og Embættis landlæknis um framleiðslu hagtalna var kunngerður í mars 2023.
25.5.2024 | 15:47
Samtakamáttur virkjaður
Sunnudagsins 26.5.24 verður minnst sem dagsins þegar þúsundir bóluefnaskaðaðra tóku höndum saman um stofnun félags til að gæta hagsmuna skaðaðra gagnvart stjórnvöldum. Samtökin Frelsi og ábyrgð eiga heiðurinn að þessu mikilvæga framtaki sem markar þáttaskil í baráttu skaðaðra sem mun auðvelda þeim að sækja bætur vegna miska sem hlaust af bólusetningu stjórnvalda með svo til óreyndum efnum.
Athygli er vakin á Facebook hópnum Aukaverkanir eftir covid sprautu sem stofnaður var fyrir tveimur árum.
17.5.2024 | 13:15