Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2025
21.4.2025 | 09:01
Hvað kostar þögn ríkisfjölmiðils á Íslandi?
Með þeirri ákvörðun Bill Clinton forseta á árinu 1997 að heimila lyfjaframleiðendum að auglýsa lyfseðilskyld lyf í fjölmiðlum urðu vatnaskil í starfsumhverfi framleiðendanna. Einungis Bandaríkin og Nýja Sjáland leyfa markaðssetningu lyfseðilskyldra lyfja beint til neytenda. Til þess tíma höfðu fjölmiðlar getað fjallað með gagnrýnum hætti um mistök í lyfjaframleiðslu og aukaverkanir lyfja. Afdrifarík áhrif ákvörðunarinnar urðu að fjölmiðlum var gert erfitt eða jafnvel ókleift að fjalla með gagnrýnum hætti um lyfjaframleiðslu þegar miðlarnir voru orðnir háðir framleiðendum um auglýsingatekjur.
Þekkt er frásögn RFK Jr. núverandi heilbrigðisráðherra Bandarikjanna af þáttagerð fyrir Fox News sjónvarpsstöðina sem hann stóð að þar sem fjalla átti um hættuna af notkun kvikasilfurs í bóluefnum. Þrátt fyrir vinskap við Ailes stjórnarformann og forstjóra Fox var framleiðslu þáttanna hætt vegna þess að meiri hluti auglýsinga stöðvarinnar kom frá lyfjaiðnaðinum eða 17 til 18 auglýsingar af 22 á venjulegu fréttakvöldi. Annað og nýlegra dæmi um áhrif lyfjaframleiðenda er þegar vinsælasti þáttagerðarmaður Fox sjónvarpsstöðvarinnar, Tucker Carlson, var umsvifalaust rekinn eftir að hafa fjallað um hvernig meginstraumsmiðlar í Bandaríkjunum höfðu brugðist almenningi með takmarkaðri umfjöllun um skaðsemi Covid bóluefna Pfizer og Moderna.
Þá vaknar spurningin: Hvað þurftu lyfjaframleiðendur að punga út háum fjárhæðum til að kaupa þögn RUV um skaðsemi mRNA efnanna?
20.4.2025 | 10:14
48% grunar að Covid faraldurinn sé ásetnings gjörningur
19.4.2025 | 12:15
Enn einn naglinn í kistu covid bóluefnanna
Niðurstöður óritrýndrar rannsóknar UCSF (University of California San Fransisco) sýna bólusetta 5,9 sinnum líklegri að lenda á spítala vegna alvarlegra aukaverkana eftir Covid bólusetningu en óbólusetta eftir Covid-19 sýkingu.
19.4.2025 | 07:46
Vísindin að baki grímuskyldu og 2m fjarlægðinni
Ástæða er til að vekja athygli á vefsíðu Hvíta hússins með staðreyndum um uppruna SARS-CoV-2 veirunnar samkvæmt rannsóknum þingnefnda ásamt nöfnum þeirra sem fremst fóru við að blekkja almenning til að trúa sögunni um að veiran hafi borist af matarmarkaði í Wuhan. Ekki er að undra að Dr. Fauci hafi þegið fyrirfram náðun heilabilaðs fyrrverandi forseta USA fyrir saknæmar blekkingar og endurteknar lygar í vitnisburði fyrir þingnefndum verandi sá einstaklingur í bandaríska stjórnkerfinu sem fjármagnaði rannsóknirnar að baki þróun veirunnar. Hvort veiran barst út meðal manna af rannsóknarstofunni fyrir slysni eða ásetning á eftir að upplýsast. En heppileg tímasetning fjárfestinga Bill Gates í bóluefnaframleiðslu korteri fyrir veiru vekur grunsemdir.
18.4.2025 | 12:50
Er framleiðsla AstraZeneca örugg fyrir smábörnin?
Furðulegt er að sjá traustsyfirlýsingu Guðrúnar Aspelund sóttvarnalæknis í svari við fyrirspurn um RS mótefnið; Við berum fullt traust til Sanofi og til AstraZeneca sem lyfjaframleiðanda. Það er engin ástæða til annars." Hrikaleg reynsla embættis landlæknis af Covid bóluefnaframleiðslu AZ virðist engin áhrif hafa á ákvörðun embættisins að kaupa RS mótefnið fyrir hvítvoðunga landsmanna. Að hafa neyðst til að hætta notkun Covid bóluefnis AZ þegar alvarlegar aukaveranir bóluefnisins hérlendis voru orðnar svo margar að jafnvel sóttvarnalækni blöskraði. Í töflunni sést hvernig covid bóluefni AZ hefur reynst margfalt hættulegra heilsu almennings en efni Pfizer sem valdið hefur heilsubresti þúsunda og ótímabærum dauðdaga hundruða Íslendinga. Svo hættulegt reyndist covid bóluefni AZ heilsu almennings að lyfjaframleiðandinn neyddist til að hætta framleiðslu og sölu efnisins á heimsvísu.
18.4.2025 | 08:54
Pfizer FN0565
Hvernig má það vera að það skipti þann bólusetta heilsufarslegu máli eða jafngildi dauðadómi úr hvaða framleiðslueiningu bóluefnið kemur sem sóttvarnalæknir ákvað að gefa honum í upphandlegginn fyrir eða eftir hádegi í Laugardalshöllinni? 18 heilbrigðisstarfsmenn á áströlsku sjúkrahúsi greinast með krabbamein. Annað en að starfa saman eiga þeir það eitt sammerkt að hafa þegið bólusetningu gegn Covid með bóluefni Pfizer úr framleiðslulotu FN0565. Af hverju er svo margt varðandi bóluefnin sem fremur minnir á skottulækningar en vísindi? Hvers vegna er unglingsstúlka í kjörþyngd sprautuð með jafnstórum skammti af Pfizer og 100 kg. eftirlaunaþegi? Hvers vegna eru bóluefni sem byggja á nýrri tækni ekki reynd með viðunandi hætti í klínískum rannsóknum? Hvers vegna hefur ekkert núverandi barnabóluefna verið reynt í tvíblindri rannsókn þar sem lyfleysan er saltlausn en ekki eitthvert annað bóluefni? Af hverju titrar lyfjaiðnaðurinn í Bandaríkjunum ásamt þeim þingmönnum sem hæsta styrkina þiggja úr þeirra hendi þegar heilbrigðisráðherrann nefnir í ræðu sinni nauðsyn þess að komast fyrir faraldur einhverfu? Allt titrar jafnvel án þess að ráðherrann hafi nefnt orðið bóluefni í ræðunni. Ánægjulegt var að frétta að fulltrúum lyfjaframleiðenda í ráðgjafanefnd FDA (lyfjaeftirlitsins) var vikið úr nefndinni í gær. Þar með er girt fyrir æpandi hagsmunaárekstur sem kostað hefur heilsu og líf ótaldra. Bæði vestan hafs og austan þar sem þekkt er að evrópska lyfjaeftirlitið dansar eftir ákvörðunum þess bandaríska. Þannig munu áhrif þessarar skynsemis ákvörðunar koma fram í bættri heilsu og minni lyfjaskaða hér á landi þegar fram í sækir.
17.4.2025 | 12:11
Grænlendingar brosa í kampinn
Áhugavert er að fylgjast með íslenskum stjórnmálamönnum lýsa hneykslan sinni á áhuga forseta USA á Grænlandi. Lítið hefur komið fram um áform forsetans annað en að Grænlendingar sjálfir komi á endanum til með að ákveða hvort þeir vilji sjá breytingar á núverandi ríkjasambandi við Danmörk og þá hvers konar framtíðarsýn grænlenska þjóðin telur landinu hagfelldust. Að þessi hugleiðing er fest á blað helgast af samtali okkar hjóna við grænlenskt háskólamenntað par sem við deildum kvöldverðarborði með á ferðum okkar nýverið. Talið barst að Trump og áhuga á að eignast Grænland með bandaríska öryggishagsmuni og ef til vill einhverja aðra hagsmuni í huga. Grænlenska parið fagnaði áhuga forsetans á landinu. Sögðu þau engan einstakling hafa gert grænlensku þjóðinni jafn mikinn greiða og Trump hefði gert með yfirlýsingum sínum. Honum hefði tekist að vekja Dani af værum blundi kyrrstöðu um málefni landsins. Ekki hefði verið vanþörf á. Jafnframt hefði nýju lífi verið blásið í umræðu um sjálfstjórn Grænlands. Sögðu þau grænlensku þjóðina í þakkarskuld við Trump vegna endurvakins áhuga og umhyggju Dana á málefnum og velferð Grænlendinga. Jákvæð áhrif af afskiptum forsetans af málefnum Grænlands virðast hafa farið fram hjá íslenskum stjórnmálamönnum.
16.4.2025 | 11:44
Einhverfufaraldurinn
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna CDC hefur birt 2025 skýrsluna um einhverfu þar sem fram kemur að einhverfa greinist hjá 1 af hverjum 31 átta ára amerísku barni. Sláandi tölurnar eru skelfilegri fyrir drengi. Á landsvísu greinist 1 af hverjum 20 með einhverfu og í Kaliforníu 1 af hverjum 12,5. Könnunin náði til barna sem fæddust 2014. Frá 1992, þegar CDC hóf að kanna tíðni greininga barna á einhverfurófi, hefur fjöldi greindra tæplega fimmfaldast sem hrekur fullyrðingar og/eða skýringar þess efnis að fjölgunina megi skýra með víkkun skilgreininga einhverfu eða aukinnar meðvitundar um tilvist sjúkdómsins. Hvað þá að erfðaþættir komi við sögu. Ekki er að undra að fjölgun einhverfra í þessum mikla mæli hafi vakið athygli nýkjörins forseta Bandaríkjanna og hann hafi falið heilbrigðisráðherra að rannsaka hverju sæti. Gert er ráð fyrir niðurstöðum ekki seinna en í september.
14.4.2025 | 12:46
Eigum við að fara til London - held ekki
Borgarferðir til nágrannalandanna njóta dvínandi vinsælda. Eins og það var gaman að heimsækja bæði London og París. Ekki lengur. Fljótvirkasta leiðin til að glata símanum með rafrænu skilríkjunum og öllu hinu er að taka hann úr vasanum á götu í London. Getur verið að senn muni ekki óhætt að halda á farsíma á götu í póstnúmerinu 101 Reykjavík? Vasaþjófar við Almannagjá? Matthew Goodwin greinir frá heimsókn til Ungverjalands og viðbrögðum heimamanna við bresku stöðunni í hlekk.
13.4.2025 | 15:00
Neikvæð smitvörn - virkilega?
Vilji menn auka líkurnar á að sýkjast af árlegu inflúensunni er fátt hjálplegra til þess en að þiggja árlegu inflúnsusprautuna. Niðurstöður rannsóknar á 54.400 heilbrigðisstarfsmönnum Cleveland Clinic sjúkrahússins, sem er samkvæmt könnunum meðal bestu heilbrigðisstofnana Bandaríkjanna, voru þeim sem létu sprauta sig við flensunni í vetur 27% hættara við að veikjast af flensunni en þeim sem ekki létu sprauta sig.