Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025

39% fjölgun fullorðinna með lokastigsnýrnabilun 2023

Skaðinn af völdum Covid-19 mRNA bóluefnanna á heilsufar landsmanna hefur ýmsar birtingarmyndir. Þannig verða tölur um fjölda greininga, meðferðir og afleiðingar nýrnasjúkdóma ekki skýrðar með vitrænum hætti án þess að nefna bóluefnin til sögunnar. Ekki skal útilokað að afleiðingar umdeilanlegrar lyfjameðferðar (remdesivir) hafi hér jafnframt áhrif. Samkvæmt dánarmeinaskrá landlæknis létust 33% fleiri 2023 af völdum illkynja æxlis í nýra en á fyrra ári. Á vefsíðu Nýrnafélagsins er greint frá 39% fjölgun fullorðinna sem greindust með lokastigsnýrnabilun á árinu 2023. Í tölum um fjölda blóðskilunar og kviðskilunar á Landspítalanum á liðnum árum má sjá sterkar vísbendingar um skaða bóluefnanna á nýrun. Tilgangur skilunarmeðferðar er að koma í stað þeirrar starfsemi nýrnanna sem hefur skerst og hreinsa úrgangsefni, steinefni og vökva úr blóðinu. Sé slíkri meðferð hætt hjá einstaklingi leiðir það vanalega til dauða á 1-2 vikum vegna uppsöfnunar úrgangsefna og vökva í líkamanum. Að mun færri skilunarmeðferða var þörf á árinu 2022 helst í hendur við mikla fjölgun dauðsfalla á árinu. Afleiðing óskiljanlegra ákvarðana fyrrverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra um framhald örvunarbólusetninga gegn Covid vetur eftir vetur þrátt fyrir sterkar vísbendingar um skaðsemi bóluefnanna og ákall fjölda vísindamanna um stöðvun á notkun þeirra sjást skýr merki í Starfsemisupplýsingum Landspítalans um skilunarmeðferðir nýrnabilaðra en þeim fjölgaði um 7% á árinu 2024 og hefur fjölgað um 13% frá árinu 2022.Blóðskilun og lokastigsnýrnabilun


Bandaríska alríkisstjórnin fjármagnar ekki frekari manngerða faraldra

Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun þar sem tekið er fyrir frekari fjármögnun alríkisstjórnarinnar á vísindarannsóknum á smitefnum og eitri sem valdið getur virkniaukandi áhrifum (gain-of-function GoF). En það er einmitt bandarísk fjármögnun rannsóknar á tilraunastofu í Wuhan í Kína sem talin er samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Hvíta hússins hafa lagt grunninn að Covid-19.Turning point GoF


Ætli nýi landlæknirinn láti eldri borgara njóta vafans?

Tímamótaákvörðun nýs heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna þess efnis að eftirleiðis verði ekki gefnar heimildir til notkunar bóluefna í landinu án undangenginnar klínískar rannsóknar með lyfleysu hefur litla sem enga umfjöllun fengið í íslenskum fjölmiðlum. Ákvörðunin nær m.a. til örvunarbóluefnis næsta vetrar gegn Covid-19. Ekki er ljóst hvort ákvörðun heilbrigðisyfirvalda vestra kemur til með að hafa áhrif á ákvarðanir Evrópska lyfjaeftirlitsins (EMA) um örvunarbólusetningu komandi vetrar. Hversu erfiðlega íslenskum fjölmiðlum gengur að greina frá breyttu fyrirkomulagi kann að helgast af þeirri staðreynd að með því að greina frá breytingunni er um leið verið að staðfesta að fullyrðingar liðinna ára um að Covid-19 bóluefnin hafi verið reynd í klínískum tilraunum með lyfleysu áður en þau voru tekin í notkun hafi ekki verið réttar. Frétt um efldar kröfur vestra til prófunar bóluefna afhjúpar því ónákvæmni endurtekinna fyrri fullyrðinga íslenskra heilbrigðisyfirvalda um klínískar öryggisprófanir Covid mRNA bóluefnanna. Þeir eru ófáir Íslendingarnir sem ekki hafa orðið vitni að í eigin fjölskyldum eða meðal vina eða samstarfsmanna heilsufarslegan skaða sem rekja má til bóluefnanna. Þrátt fyrir augljósan skaða á heilsu landsmanna samkvæmt tölulegum staðreyndum er skaðlegu bóluefninu haldið að eldri borgurum landsins af landlækni sem enginn væri morgundagurinn.RFK Jr Placebo


« Fyrri síða

Höfundur

Þorgeir Eyjólfsson
Þorgeir Eyjólfsson

Höfundur er eftirlaunaþegi

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband